Tuesday, September 29, 2009

tölvupóstar

Deginum í dag var meira og minna eytt í að senda tölvupósta vegna Icelandic Music Days en hápunktur dagsins var ansi mergjaður göngutúr sem ég tók. Ég semsagt fór í norður og fann ansi flottan skóg, ja eða vísi að skóg, þar voru meira að segja geitur á beit, innan girðingar, en á 21. öldinni er maður nú bara glaður að sjá dýr yfir höfuð. Það var smá úði sem kom úr loftinu þannig að þetta var fullkomið og ég steikti mér svo bratwurst í kvöldmat.

En vá, ég er að hlusta á Of Blood So Red eftir Christian Lindberg, það er hreint út sagt mergjað tónverk. Hlakka til að hitta kallinn eftir tæpar tvær vikur.

En annars skil ég ekki hvað ég er að blogga núna, búinn að hanga fyrir framan tölvuna í næstum allan dag.

Saturday, September 26, 2009

lítil fjárfesting

http://www.youtube.com/watch?v=7Eh2QlJfuHM

Linkurinn fyrir ofan er af vídjói sem ég sá fyrst fyrir þremur árum en sá aftur á youtube núna rétt áðan. Þar fjallar fyrirlesari um gildi sköpunar og hvernig menntakerfið hefur kæft sköpunargáfu fólks, jafnt sem sköpunarvilja.

Við lifum því miður í þjóðfélagi þar sem einstaklingurinn hefur oft ekki frelsi til þess að vera eins og hann er. Af hverju eru krakkar skyldaðir til þess að læra stærðfræði á hverjum degi en ekki dans? Það er mín trú að fólk þurfi að geta tjáð sig á sem fjölbreyttastan hátt, með líkamanum, með hljóði, með orðum, með tölum. Allt það hefur jafnmikið gildi og á að hafa pláss innan menntakerfisins.

Gott í bili

Thursday, September 3, 2009

Síðasta árið í Amsterdam

Kominn aftur út til amsterdam, flaug á sunnudagskvöldið. Skil eftir fjölskyldu og kærustu og tekst á við lokaáfanga Bachelor gráðunnar. Því miður virðist ég hafa veikst af einhverri flensu og hefur hún bundið mig við heimili mitt í dag, fann fyrir ónotum í hálsi í gær og það stigmagnaðist í nótt og þurfti að boða forföll á æfingu. Á morgun fer ég úr húsi nema ég sé við dauðans dyr, vil helst ekki missa af þessu giggi á Gaudeamus tónlistarvikunni. Fæ líka smá borgað fyrir, maður verður að grípa allt sem maður getur núna.

Miði til London um miðjan október er kominn í hendur mínar, ætla að kíkja á tónleika með spilandi og stjórnandi og semjandi Christian Lindberg auk þess að skoða aðstæður í Guildhall skólanum þar sem ein mjög spennandi mastersgráða er í boði. Collaborative Mmus in New audience and innovative music practice, ekki slæmt heiti. Splunkuný gráða sem berst gegn þröngsýni Konservatoríanna og blindni fyrir því sem samfélögin kalla á.

Það er voða spennandi allavega og ég er svona að undirbúa umsókn í huganum, deadline er 15. janúar og ætla mér að vera kominn með ágætan umsóknarpakka fyrir þann tíma.

En nú dettur mér lítið í hug til að skrifa meira og dreg mig í hlé.