Ok, verð að biðjast afsökunnar á bloggleti minni, en ég hef góða afsökun. Handan við hornið er taka 2 af Icelandic Music Day og hefur hátíðin stækkað til muna, nú verða það fernir tónleikar á þremur dögum.
Það eru ansi margir hlutir sem þarf að huga að í skipulagningu svona hátíðar, og tala ekki um þegar maður hefur ekkert budget.
Ég mun stjórna á galatónleikum hátíðarinnar fjórum verkum, Íslenskum Rímnadanslögum eftir Jón Leifs, Rhythm Sculpture # 1-1 eftir Þráinn Hjálmarsson, All Sounds to Silence Come eftir Daníel Bjarnason og Stokkseyri eftir pabba minn. Jón Þorsteinsson mun syngja einsöngshlutverkið í Stokkseyri og það á eftir að verða ansi fallegt.
Svo er Ingi Garðar Erlendsson að skrifa dúett fyrir mig og Grím, fyrir klarinet og básúnu.
Þannig að tónlistarlega er þessi hátíð ansi mikill pakki, svo er skipulagningin margföld miðað við það.
Í hljómsveitinni verða til dæmis 31 spilari, sem allir þurfa að fá parta og æfingaáætlun. Og það er langt frá því að vera þannig að fyrsta fólkið sem maður talar við segi já. Ætli ég hafi ekki talað við svona 70 manns í allt fyrir hljómsveitina.
Svo er markaðssetning, hanna plaköt og flyera, gera facebook event. Fá að auglýsa hjá ýmsum stofnunum.
Ég gerði svo píanóúrdrátt af Stokkseyri. Ætla að snurfusa hann eitthvað til í sumar og þá er vonandi hægt að gefa verkið út með píanóundirleik, myndi hjálpa við að láta tónlistina heyrast sem víðast.
En þetta verður hreint út sagt stórkostleg hátíð, flottir tónleikar og svo verðum við með kynningarbás til kynningar á íslensku tónlistarlífi og þegar er búið að fá samstarf við Íslenska Tónverkamiðstöð, Listaháskóla Íslands og Portus Group uppá kynningarefni.
Hellingur af íslenskum geisladiskum mun verða til sölu á hátíðinni.
Lifið heil,
Ari