Friday, August 31, 2007

Aftur í gírinn

Ég og Grímur fórum á stórbrotna tónleika í gærkvöldi. Þriðji strengjakvartett Brahms og klarinettukvintett sama tónskálds. Jerusalem strengjakvartettinn og Martin Fröst voru flytjendurnir.

Ég á nú alltaf samt erfitt með að fara á tónleika sem þessa og sjá vesalings hljóðfæraleikarana þjösnast á hljóðfærunum og finna aldrei fyrir því að maður sé umlukinn af hljóði. Þess verður auðvitað að geta að þetta var strengjakvartett og þannig grúppa hefur að sjálfsögðu ekki yfir jafn mikilli hljómbreidd að ráða eins og til dæmis brass kvintett.

En túlkunin á verkunum var til fyrirmyndar og á Martin Fröst skilið allt það lof sem hann fær. Hann er framúrskarandi músíkant.

Að loknum tónleikunum fórum við á Lusthof með krökkum úr klarinettubekknum. Grímur er náttúrulega nýji gaurinn í bekknum og fellur hann bara býsna vel inní hópinn. Reyndar í minnihluta, bæði hvað varðar kynferði og kynhneigð.

Í dag hjólaði ég svo frá skólanum og á nýja heimilið mitt í Diemen. Þetta er nú slatti af malbiki sem maður þarf að hjóla á en mjög skemmtileg leið og falleg. Veit nú ekki hvort maður nennir að hjóla hana oft á dag og alls ekki í rigningu. Það eru auðveldar almenningssamgöngur héðan og niður í bæ, það er gott.

Ég er smám saman að koma mér aftur í spilagírinn. Er búinn að spila smá í dag. Reyndar með æfingadempara svo ég geri ekki blessaða nágrannanna gráhærða fyrir aldur fram.

daag

Thursday, August 30, 2007

Fluttur

Nú er ég endanlega fluttur á nýja staðinn. Íbúðin er mjög notaleg og allt til alls hérna. Tvöfalt rúðugler og klósett sem hægt er að standa á meðan pissað er. Hér er einnig örbylgjuofn en hefðbundinn ofn er ekki á staðnum. Það er innifalið net hérna og er það náttúrulega æðislegt.

Ég á nú eftir að koma mér almennilega fyrir hérna en er búinn að setja tölvuna upp. Þarf að útvega mér hillur og diskastanda og ekki væri slæmt ef ég fengi mér skjalaskáp undir nóturnar. Mig vantar aðeins fleiri herðatré en það kemur með tíð og tíma.

Hjólið mitt er reyndar enn á Bloemgracht, næ í það síðar í dag og þá ætlum ég og Grímur einnig að útvega honum almennilegt hjól.

Hverfið mitt nýja er mjög notalegt og alveg laust við læti. Að sjálfsögðu er staðsetningin ekki jafn góð og í Jordaan en allt annað er á miklu hærri standard. Það eru tré hérna úti í garði og grænar graslendur. Vantar bara hjartardýr til að bíta grasið.

Hitti Johan, Kenneth og Jonathan á bar í gær. Drukkum einhvern dýrindis belgískan bjór. Það var frábært að hitta strákana aftur en best var að geta blótað á hollensku aftur.

Tot ziens,

Thursday, August 23, 2007

Útvarp

Í dag var tekið við mig útvarpsviðtal. Nýr þáttur er að hefja göngu sína á rúv sem fjallar um hin sinfónísku hljóðfæri. Ég gerðist sendiherra básúnunnar þennan hálftíma sem viðtalið tók. Það verður reyndar allt klippt niður og skorið við nögl þar sem básúnan fær aðeins athygli í 13,5 mínútur.

Ég þurfti að fá lánaða básúnu hjá honum Haraldi fyrrum nemanda mínum en ég gleymdi minni eigin og hann var sá básúnuleikari sem bjó næst staðsetningu viðtalsins.

Eins og alltaf þá komst maður ekki í nærri því allt sem maður ætlaði sér að fara yfir en maður er nú orðinn vanur því.

Þetta var svona dáldið eins og samanþjappaður tími í hljóðfærafræði en ég hef þurft að kynna básúnuna í tveimur slíkum tímum, annars vegar hjá Tryggva í Tónó og hins vegar hjá Úlfari í Listaháskólanum.

Nú lýtur allt út fyrir það að ég og Grímur munum verða sambýlingar í Amsterdam í vetur. Það er náttúrulega gargandi snilld, eins og bíómyndin.

Í gærkvöld fórum við feðgarnir að borða á grænmetisstað. Það var svona álíka spennandi og að fá heilahristing og verða að fá næringu í æð. En pabba fannst það gott. Svona geta skyldmenni verið ólík. Það var alveg ótrúlegt að horfa á mat fara upp í mann og tyggja en finna samt ekki fyrir neinu bragði eða lykt. Mér leið bara illa.

Eftir matinn fórum við að hitta Sigga Manna frænda minn sem var nýkominn til landsins frá Nepal. Ég þurfti nú mest að sinna frændsystkinum mínum og var það bara stuð nema ég fékk sko ekki leyfi til þess að leika ekki við þau. Þau kúguðu mig, litlu þrjótarnir.

Wednesday, August 22, 2007

Svefn

Ég hélt upp á það að fyrsti skóladagurinn í menntaskólum landsins er í dag með því að fara á fætur ansi seint. Það er reyndar honum föður mínum að kenna þar sem hann var sífellt að vekja mig og gaf mér ekki tækifæri til að sofa í einum dúr.

Ég er orðinn háður Star Trek þáttum. Það er hreint með ólíkindum hvað ég get horft mikið á þessa þætti og leiðist aldrei á því.

Ég fékk boð í dag frá ónefndum aðila um að ég fengi að spila konsert næsta vor. Þetta er allt á viðræðustigi enn sem komið er, frekari fréttir fylgja síðar.

Samkvæmt stjörnuspánni á heimspeki að vera eitthvað kynæsandi við mig í dag. Það yrði þá breyting til batnaðar. Ég fæ stundum á tilfinninguna að ég sé álíka kynæsandi og notaður tepoki :)

Ætla að spila eitthvað

Monday, August 20, 2007

Bankavesenið

Nú var ég að enda við að borga fyrir herbergið nýja sem ég er að taka á leigu í Amsterdam. Það var nú hægara sagt en gert. En samt voða gaman að vera undir einhverri pressu. Leið dáldið eins og James Bond, berjast við tölvutæknina.

Nú á það eftir að koma í ljós hvort að leigusalinn samþykki borgunina mína. Hann er voða hræddur og heldur að ég ætli að svíkja hann um allt. Hann er búinn að setja þvílíka skilmála sem eru eiginlega fáránlegir en maður lætur tilleiðast. Flott íbúð í góðu hverfi.

Fór til Sigga í gærkvöldi til að skila munnstykkjum og dempurum. Áttum gott spjall um básúnur og slagverksleikara og eitthvað annað inná milli.

Það er skrýtið að hugsa til þess að það er vika í brottför hjá mér. 2 vikur í fyrsta skóladaginn. Þá vona ég að ég verði búinn að flytja allt mitt drasl yfir á nýja staðinn.

Ég ætlaði í fótbolta í dag með myndarvéla genginu en þessar millifærslur til Hollands komu í veg fyrir það. Svona er lífið. Ég var nú búinn að hlakka til þess að fara í fótbolta. Ná út reiðinni eftir leikinn í gær þegar Rob fucking Styles gaf þetta fáránlega víti. Hann er sem betur fer búinn að afsaka gjörðir sínar opinberlega en það breytir ekki úrslitum leiksins. Mér fannst mjög óheiðarlegt af Lampard að skjóta ekki viljandi yfir. Ljótur blettur á hans ljóta ferli. Alvöru íþróttamenn hefðu aldrei tekið það í mál að fá gefins svona mark. Að nýta sér mistök dómarans á svona hátt er skammarlegt.

Nú er ég einn í kotinu þangað til mamma og pabbi koma heim. Ég krosslegg fingur um að maturinn verði ætur. En bíð rólegur þangað til.

Sunday, August 19, 2007

Menning

Eins og alþjóð veit var menningarnóttin í gær. Fullt af mannlífi í bænum og frábær flugeldasýning. Eftir á að hyggja hefði ég helst átt að halda heim á leið eftir þá sýningu. Þá hefði ég ekki orðið vitni af því sem á eftir fylgdi. Unglingadrykkja og slagsmál.

Það er svo sorglegt að sjá 14 ára krakka svo drukkið að það veit ekki hvar það er. Lögreglan fannst mér ekki taka nógu alvarlega á því. Hún hafði reyndar í nógu öðru að snúast.

Lögreglan var sýnileg en persónulega hefðu þeir mátt haga eftirlitinu á annan hátt. Alltaf þegar maður sá lögregluna þá var hún í 20 manna hópum. Af hverju ekki að vera í smærri hópum og ná þá yfir stærra svæði. Það var líka mjög augljóst að sumir lögregluliðarnir voru skíthræddir. Ég fann nú aldrei fyrir hræðslu en þegar einn var nærri fokinn í mig út af því að hann rakst utan í mig þá fannst mér nú bara gott að halda heim á leið.

Hvað veldur því að fólk hendi glerflöskum uppí loftið þegar fjöldi manns er að labba í næsta nágrenni. Mesta mildi var að ég skyldi ekki fá glerflösku í hausinn. Hún mölbrotnaði hálfan metra frá mér.

Ég hefði allavega ekki viljað vera undir áhrifum áfengis á þessum stað. Maður varð að vera með full skilningarvit til að sneiða hjá þeim sem vildu fara í slag og til að fá ekki bjórflösku í hausinn.

Ekki góð reynsla af miðborginni á þessari nótt.

Friday, August 17, 2007

Ísafold er búin í bili

Síðustu tónleikar Ísafoldar voru í gær. Þeir tókust mjög vel. Að sjálfsögðu var partý á eftir. Ég held ég hafi komið heim um klukkan hálf sjö í morgun. Partýið var stórskemmtilegt og öllum til sóma.

Dagurinn í dag hefur að mestu farið í það að fylgjast með mömmu og Haraldi pakka niður fyrir brottför hans. Yfirleitt þannig að mamma spyr Harald að einhverju varðandi föt hans og hann veit ekki neitt. Ansi gaman að fylgjast með því.

Pabbi ætlaði að redda pizzu í kvöldmatinn. Hann er sem stendur 40 mínútum á eftir áætlun og held hann sé ekkert á leiðinni.

En svona er lífið

Thursday, August 16, 2007

Ísafold í kvöld

Síðari tónleikar Ísafoldar eru í kvöld. Svokallað VISA prógramm. Víkingur og Bragi ætla aftur að slást í hópinn og svo eftir tónleikana verður að sjálfsögðu partý ;)

Bróðir minn er að flytja til Danmerkur til að nema við Lýðháskóla þar í landi. Eitthvað fótboltatengt. Það verða viðbrigði fyrir foreldrana að vera allt í einu ein í kotinu. 2 áratugir hafa farið í að sjá fyrir einhverjum sem síðan allt í einu eru ekki á staðnum. Eins gott að það er langt í að ég þurfi að hugsa út í það ;)

En best að gera eitthvað af viti ;)

Sunday, August 12, 2007

Smá Breik

Nú er ég aftur kominn í siðspilltu höfuðborgina eftir nær 2ja vikna afeitrunarbúðir í Skálholti með krúttunum í Ísafold. Það var yndislegur tími sem ég átti í Skálholti með þessum unaðskrökkum, styrkþegum og verðlaunahrossum.

Í dag byrjaði enski boltinn að rúlla og mínir menn í Liverpool byrjuðu vel. 2-1 sigur á útivelli gegn Aston Villa. Gerrard var kóngurinn og Torres leit vel út.

Ég vona að fólk afsaki þessa bloggleti mína en ég lofa því að mæta aftur þríefldur til leiks þegar ég fer aftur til Amsterdam.