Wednesday, October 28, 2009

S.L.Á.T.U.R Dúndur á sunnudaginn

s.l.á.t.u.r er hópur af tónskáldum sem íslendingar ættu að þekkja orðið nokkuð vel vegna dugnaðar síns í nýsköpun. Nú mun orðspor þeirra ná til Hollands með mér í för. Ég, Ingi Garðar og Þráinn troðum upp í Westegasfabriek nú á sunnudaginn klukkan 16:30 í samvinnu við IADA-icelandic art design amsterdam undir stjórn Gerðar Pálmadóttur. Það er ansi spennandi. Ingi er meira að segja að skrifa smá sóló fyrir mig og þráinn ætlar að skrifa básúnudúett fyrir okkur Inga. Ég mun svo spila smá sóló eftir sjálfan mig, er með nokkrar hugmyndir en þarf að dúndra því í gegn núna fyrir sunnudaginn.

Að vissu leyti eru slátur dúndur eldgömul hugmynd, minnir mann á tíma Beethoven þegar tónskáld hittust heima í stofu hjá einhverjum þeirra og hlustuðu á tónverk hvers annars, og oft tónverk sem voru enn í vinnslu. Fyrsta merki um svokallaða lærða tónlist, sú skilgreining þýðir gróflega að maður þurfi vissa menntun til þess að geta notið viðkomandi tónlistar. Ég er reyndar alls ekki sammála því að maður þurfi nokkurra menntun til þess að njóta tónlistar, hve skrýtin sem hún er, maður þarf bara að hafa áhuga á því að tilheyra þeim hópi sem hlustar á lærða tónlist. Allavega mín skoðun.

En annars er þetta lærða tónlistarhugtak uppsprottið af tónlistarfræðingum sem vilja viðhalda fágun æðri listar og fæla frá það fólk sem gæti raskað þeirri stöðu sem æðri list á að hafa innan þjóðfélagsins.

Heima á Íslandi er ansi algengt að Forsetanum sé boðið á veglega sínfóníutónleika, eða frumsýningu í óperunni, frumflutning á íslensku leikverki í Þjóðleikhúsinu og opnun sýningar í Listasafni Íslands. Það fer ekki mikið fyrir því að honum sé boðið á tónleika með Nylon. (eingöngu reynsla mín, hef engar haldbær gögn máli mínu til stuðnings)

En það hefur mikið að segja um listina held ég, sá markhópur sem reynt er að draga á viðkomandi atburð.

En jæja, ég er of svangur til þess að skrifa meira.

Tuesday, October 13, 2009

Fallegur dagur

Það er sjaldgæf októbersýn sem mætir augum mínum þegar þau kíkja útum gluggann, logn, heiðblár himinn með stöku skýi. Sannarlega tilbreyting frá því sem iðulega tekur á móti manni þegar maður fer út, skýjahula ættuð úr Mordor.

Í dag er ég meira og minna að láta tónlistina sem ég ætla að stjórna í febrúar renna um blóðið og reyna að finna melosið. Þann söng sem býr í verkunum og talar til mín.

Nú væri ég reyndar meira en til í að vera staddur í osló og taka metróinn rétt útfyrir borgina að himnesku vatni sem ég gekk í kringum í síðustu heimsókn minni til Oslóar. Hef einhverja þörf fyrir smá óbyggðastemningu og einhvern veginn er Lundúnarreisa mín sem hefst nú á fimmtudaginn ekki sjálfsagt framhald af þeirri þörf. En, kannski einmitt það sem ég þarfnast, nokkrir dagar í borg sem lætur amsterdam líta út fyrir að vera smáþorp.

Annars er dagskráin mín í London tiltölulega þétt, ja svona á minn mælikvarða. Flýg út á fimmtudagsmorgun og mun hitta vinkonu mína einhvers staðar rétt hjá skólanum hennar þá strax um morguninn, á reyndar eftir að finna út hvar það er og hvernig er best að komast þangað. En það verður bara gaman, ég get fengið sjokk við að heyra englendinga tala ensku, alltaf velkomið þegar maður er orðinn vanur því að heyra hollendinga, spánverja og íslendinga reyna að gera sig skiljanlega á alþjóðatungumálinu.

Á föstudaginn mun ég svo fara í tíma með Sigrúnu Sævarsdóttur, en hún er básúnuleikari og kennari í Guildhall School of Music and Drama, hún er mjög aktív í þeim hlutum sem ég er áhugasamur um, spuna og skapandi aðferðir við músík. Kannski hitti ég svo Heru Hilmars um kvöldið, þegar hún er búin í skólanum sínum.

Laugardagurinn verður tileinkaður svíum, er búinn að mæla mér mót við 2 svía sem ég var með í hljómsveitinni í Lundi fyrir nokkrum árum og svo eru tónleikar með Christian Lindberg um kvöldið. Reyndar á Liverpool leik við Sunderland klukkan 15:00 á enskum tíma þannig að kannski maður finni sér einhvern bar og horfi á leikinn. Man enn vel eftir því þegar ég og pabbi sáum hluta af Liverpool-Chelsea á bar í London fullum af áhangendum Liverpool. Alltaf gaman að horfa á leiki á barnum, verð að gera meira af því. Hef ekki enn séð fótboltaleik síðan ég kom til amsterdam í september, algjörlega glötuð frammistaða.

Flýg svo til baka á sunnudeginum um klukkan 2 þannig að ég myndi svo sem hafa tíma til þess að skoða mig eitthvað um um morguninn.

Næsta vika er svo frívika í skólanum mínum og ég er að velta því fyrir mér að leggjast í víking til einhverra afskekktari staða í hollandi, það gæti verið cool að sjá einhverja minni bæi.

Annars mæli ég með því að fólk lesi sér til um íþróttakeppni S.L.Á.T.U.R www.slatur.is ég verð nú bara að segja að ég er ansi hrifinn af þessum hópi og umræðurnar sem fram fara á síðunni þeirra eru mjög athyglisverðar.

Svona nokkuð er dáldið áberandi í listasögu 20. aldarinnar. Þegar hópur af listamönnum með álíkar skoðanir gera uppreisn gegn ríkjandi gildum. Til þess að búa til eitthvað nýtt þá verði að henda ölllu því gamla, annars er maður bara að endurtaka sig, eða að útsetja áðursamda tónlist.

Dáldið heillandi fyrirbæri í listasögunni og algjör óþarfi að dæma það gott eða slæmt.

En jæja, það er áhugavert að sjá hvernig fólk hópar sig saman á meðvitaðan eða ómeðvitaðan hátt. Og kannski er það eina leiðin til þess að eitthvað þróist, að margir einstaklingar reyni fyrir sér á sinn hátt með svipaða uppskrift. Þess vegna er ég ánægður þegar hópur af fólki tekur sig saman og gerir uppreisn gegn ríkjandi gildum, og ég er líka ánægður með að annar hópur af fólki tekur sig til og úthúðar uppreisnarseggjunum. Til þess að maður taki framförum þarf einhver að gera þær kröfur til manns að maður virkilega hugsi sinn gang og neikvæð móttaka getur haft mjög jákvæðar afleiðingar til lengri tíma litið.

Maður sér þetta gerast daglega í bandaríkjunum, hins frjálsa land. Átök milli nýnasista og verndarhópa um réttindi innflytjenda. Einn félagsfræðingur sem ég sá viðtal við á discovery lýsti furðu sinni á því að hópur nýnasista kveikti í verslun hvíts manns, vegna þess að hann réði til sín ólöglegt vinnuafl. Þannig að skilgreningin á hvítu afli er ekki eins blátt áfram greinilega og fólk vill meina.

Blessunarlega eru listirnar nú iðulega lausar við ofbeldisseggi eins og nýnasistana en maður sér oft svipuð átök, þó oft á málefnalegum nótum. Og það er vel, maður þarf að geta réttlætt skoðanir sínar, það er ekki nóg bara að vera með eða á móti, maður verður að geta lýst sinni eigin sannfæringu. Og þá verður maður auðvitað að hafa þau tök að geta tjáð sig á þann veg að fólk bæði skilji mann og hlusti á mann af virðingu.

Tungumálið er nefnilega ansi mikilvægt þegar kemur að því að mynda sér skoðun. Hvernig fólk talar er mjög mikilvægt. Ef Obama talaði eins og rappari þá hefði hann aldrei náð langt sem stjórnmálamaður því að miðillin eru skilaboðin. Ég verð að taka það fram að ég fæ að láni núna orð Guðmundar Steinars, Slátursmanns með meiru og hvet fólk jafnfram til að kynna sér umræðurnar sem fram fara á heimasíðu þeirra, slatur.is

Þess vegna gerist það aftur og aftur í sögunni að hvítt valdamikið fólk af "réttum" ættum misnotar vald sitt gjörsamlega og framkvæmir óafsakanleg ódæðisverk. Það einhvern veginn skipti ekki máli hvað fólkið sagði, heldur hvernig það sagði það. Miðillinn er skilaboðin.

En jæja, nóg af heimspeki. Ætla að músísera.

Saturday, October 10, 2009

rúmlega

Ætla að taka á mig jákvæða rúmlegu í dag, allavega part af deginum. Greina og lesa inná milli. Ef leiðinn tekur yfir þá bara fer ég í skólann. Æ, Hvað helgar geta verið notalegar svona þegar maður vaknar bara þegar maður vaknar og gefur sér nægan tíma til þess að lesa þær fréttir sem í boði eru og maður hefur áhuga á.

Hmm, ætli ég kíki bara ekki á eitt stykki kastljós þátt líka, þó vissulega sé nú stundum gott að fjarlægjast lætin á Íslandi þá má maður nú ekki alveg hætta að fylgjast með.

Jæja, rúmlega mín hefst þá formlega innan 5 mínútna.

Friday, October 9, 2009

Kartafla

Eftir tíma með Ivan í gær skrapp ég til haag til þess að láta gera við euphonium garm skólans. Þegar til haag var komið sló ég á þráðinn til Þráinns og hitti hann og Inga. Ingi Garðar þurfti reyndar að fara í tíma fljótlega þannig að ég og Þráinn spjölluðum bara um lífið og tilveruna. Hann kynnti mér fyrir kartöflustað þar sem maður fær bakaða kartöflu með ýmsu góðgæti, verulega spes matur en sjarmerandi á sinn hátt og alls ekki vondur.

Var kominn heim um hálftíu leytið og sá þá að nóturnar sem ég var að bíða eftir voru komnar. Því miður var partitúrinn af stokkseyri án fjögurra kafla. En ég get svo sem byrjað að kynna mér vel þá kafla sem ég hef undir höndunum. Jafnframt fékk ég skorið af All sounds to silence come eftir Danna og það er bara stórskemmtilegt að takast á við það verk. Þekki það reyndar vel, þar sem ég hef spilað það nokkrum sinnum og meðal annars tekið það upp.

En þyrfti að fara að koma mér í skólann.

Sunday, October 4, 2009

Ímyndun

Þessa önn er ég í valáfanga í skólanum mínum sem fjallar um ímyndunaraflið. Það er ansi spennandi þó að hópurinn sé fullur af fólki sem er mjög upptekið af því að vera listamenn, þannig að það er varla hægt að eiga almennar samræður af þeim sökum. Ég er eiginlega á því að það að vera eitthvað er aukaverkun, það má til dæmis ekki vera ásetningur fólks að vera listamenn, því þá er það að stefna í átt að einhverju í stað þess að láta það gerast. Eins og fallegar stelpur sem vita að þær eru fallegar eru mjög óaðlaðandi af þeirri ástæðu að þær eru meðvitaðar um fegurð sína og gjaldfella hana þannig.

Sama með listina, listin er ekki meðvituð, hún er ómeðvituð, annars er hún ekki list. Maður býr ekki til masterplan til þess að fanga athygli ungrar stúlku, það gerist þegar maður á síst von á því.

Maður sá það sama gerast með Ronaldinho, það kom sá tími þegar hann var orðinn of meðvitaður um mikilvægi sitt og þá dalaði hann.

Dæmin eru endalaus máli mínu til stuðnings og það pirrar mig óstjórnlega þegar fólk í kringum mig er of meðvitað, og hegðar sér öðruvísi eftir því hvar það er statt.

Að kunna að hegða sér er samfélagslega mikilvægt en það bælir niður einstaklinginn og það frelsi sem hver og einn á að njóta. Persónulega finnst mér ekkert spennandi að sjá hóp af fólki þar sem allir fara að leikreglum samfélagsins, við leitum alltaf af þeim einstaklingum sem skera sig út úr einhverra hluta vegna og við höfum áhuga á því.

Við höfum áhuga á ofurmenni Nietzche, sá sem fellur inní hópinn er ekki áhugaverður og hví leitast þá vestrænt uppeldi að einhverjum almennum jöfnuði? Ég er reyndar þess þenkjandi að allir eiga að hafa jöfn tækifæri til þess að gera það sem þeir hafa áhuga á. Þess vegna gengur jafnaðarstefnan ekki alveg upp þar sem áhugasvið fjölda fólks er sýnd lítilsvirðing með námsskrá grunnskóla. Vissulega er skólaskyldan gott mál þó að hún reyndar brjóti niður á andlegan hátt þá einstaklinga sem passa ekki inní skólakerfið. Þetta er dáldið öfugsnúið, með jöfnuði verður til ójöfnuður.

Ég man að mér fannst mjög öfugsnúið þegar ég var í 3. eða 4. bekk að það skall á kennaraverkfall sem varði í nokkrar vikur. Það var ofar mínum skilningi að kennarar þyrftu að fara í verkfall til þess að knýja fram betri launakjör, mér fannst ekkert sjálfsagðara en að þeir sem þyrftu að annast svo mikilvægt starf að undirbúa ungviðið undir lífið fengu þau laun sem það átti skilið. Það eru til dæmis ekki góð skilaboð að senda ungu fólki, þá fannst mér hræðilegt til þess að hugsa að sumt fólk yrði grunnskólakennarar. Hve mikið ég hef skipt um skoðun. Fyrir mér er kennarahlutverkið eitt það allra mikilvægasta í samfélaginu og eitt af þeim störfum sem ég held að allir sem hafi einhverja skynsemi í kollinum vilji að fagfólk skipi.

Þegar kreppan skall á þá byrjaði ég að hugsa útí hvað mér þætti mikilvægast í samfélaginu og fyrir mér þá voru þrír hlutir efst á baugi sem mér finnst nauðsynlegt að séu í lagi. Menntun, heilsugæsla og löggæsla. Til þess að þeir hlutir séu í lagi þurfa atvinnuhjól landsins að snúast svo að það skapist fjármagn til þess að gefa fólki færi á að mennta sig, leita sér læknisaðstoðar og finnast það vera öruggt í samfélaginu. Það sem held ég þurfi að breytast eru viðskipti viðskiptinna vegna. Ein grein getur ekki bara einskorðast við sjálfa sig, list listarinnar vegna er álíka heimskulegt hugtak.

Þetta tengist því sem ég byrjaði á áðan með meðvitund, ef viðskiptamaður er of meðvitaður um starf sitt þá byrjar viss firring sem getur verið varasöm. Það sama sér maður í tónlist og myndlist, fótbolta og bandíi. Ef maður er til dæmis of meðvitaður um það að vera nemandi þá mun maður aldrei gera neitt án þess að tala við kennara fyrst og það held ég að sé mannskemmandi því að það aftrar persónulegum þroska að þurfa alltaf að bera eitthvað undir aðra áður en maður framkvæmir eitthvað.

lifið heil