Ég vaknaði í morgun með hita, smassaði á Ivan og fór aftur að sofa. Vaknaði svo síðar og horfði á Star Trek, fann til hungurs og smurði mér rúgbrauð með hnetusmjöri og drakk vatn með. Meira Star Trek gláp.
Og nú er ég með blessaðan valkvíða fyrir kvöldmatinn. Ég á nefnilega ekki til neitt að borða og á engan pening á mer þannig að ég neyðist til þess að fara útí búð.
Lífið væri nú auðveldara ef ég væri með pening á mér. Þá myndi ég bara panta mér mat, annað hvort frá Dominos eða Grill World. En að fara útí búð og koma svo heim og panta pizzu er meira að segja aðeins of plebbalegt fyrir mig. En mig langar nú samt í dominos pizzu þannig að ég ætla nú samt að gera þetta, þrátt fyrir ósamþykki annars fólks. Stundum verður að taka ákvarðanir sem eru erfiðar og mæta andstöðu fólks í kringum mann.
Ég bara sé í hyllingum kvöld tileinkað pizzuáti og Star Trek glápi.
Sannleikurinn er að ég er orðinn þreyttur á að borða rúgbrauð með hnetusmjöri í hvert mál.
Lifi byltingin,
a
Friday, November 28, 2008
Monday, November 24, 2008
10 dögum síðar
Nú verðið þið að afsaka bloggleti mína, sem hefur reyndar ekkert með leti að gera, einfaldlega búið að vera brjálað að gera.
Píanóúrdrátturinn hefur fengið að mæta afgangi núna á síðustu dögum vegna smá greiningarverkefnis sem ég er enn að vinna að. Ég átti reyndar að skila því af mér í dag en fékk smá frest. Ég er semsagt að greina lokasenuna í Tristan og Isolde. Ég er búinn að greina hljómfræðina en til þess að uppfylla mínum skilyrðum um góða greiningu þá á ég eftir að útskýra hana, ég veit hvað gerist en ég á enn eftir að finna út hvernig það gerðist. Og af því að tónlistin er svo nátengd dramanu þá get ég líka pælt í því af hverju það gerist svona en ekki hinsegin.
Björk hélt upp á afmælið sitt á laugardagskvöldið og var diskóþema í því og haldið hjá Grími. Ég klæddi mig í jakkafötin og í bleika skyrtu og stal senunni með fáséðum tilburðum á dansgólfinu. Allavega að mínu mati. Andreas kom reyndar sterkur inní en hélt ekki alveg við mig. Að mínu mati.
Það voru brasskvintet tónleikar í gær. Endalok á hræðilegum part af þessu skólaári. Tónleikarnir voru samt bara fínir.
Ég hef samt voða lítið meira að segja, hef gert voðalega lítið af mér. Bara verið heima og greint og dundað mér. Engin fyllerí, því miður. En næsta helgi verður flott, engir tónleikar ;)
Geri nú eitthvað af mér sem verður fréttnæmt,
Ari

Friday, November 14, 2008
Góðar fréttir
Jæja, það kom að því að ég fékk ánægjulegar fréttir varðandi febrúarprojectið mitt. Ég fæ inni í Bernard Haitink salnum laugardaginn 14. febrúar. Það eru viss tímamót því að nú er ég viss um að vera með húsnæði og get hagað málum mínum í samræmi við það.
Ég semsagt hitti DOK leiðbeinanda minn í dag, bara á ganginum í skólanum, og hann sagði mér einnig að skýrslan sem ég hafði skilað inn hefði verið góð.
Það er ansi kalt núna þennan nóvembermorgun í Diemen, held ég þurfi jafnvel að fara í flíspeysuna.
En já, ég þarf að byrja að vinna smá. Píanóúrdrátturinn gerir sig ekki sjálfur, það er alveg á hreinu.
A

Thursday, November 13, 2008
Líf píanóúrdráttargaursins
Ég er enn að vinna í því að gera píanóúrdrátt af Gloriu kaflanum úr Skálholtsmessunni. Þetta er alveg svakalega mikið verk. Vann í einn og hálfan tíma og tókst að klára held ég 2 mínútur af tónlist. Er nú samt vel á veg kominn með þennan kafla og ég ætti bara að þurfa svona 2 klst í viðbót til þess að setja inn allar nóturnar. Aðra 2 tíma til þess að setja inn texta og styrkleikamerki og ýmis smáatriði.
Það er alveg ótrúlega hollt að gera svona píanóúrdrátt. Maður kynnist verkinu rosalega vel á þann hátt að maður verður að ákveða hvað er mikilvægt hverju sinni. Hvar liggur tónlistin, hvar er skrautið?
Svona líf á vel við mig, grúsk, verða samvaxinn tónsmíðinni.
Klst síðar.
Nú er ég hins vegar að greina Jón Leifs verkið. Sjötta tilbrigðið er dáldið sérstakt að því leyti að það eru eingöngu dúrhljómar í kaflanum. Í fyrstu tveimur töktunum eru sem sagt í þessari röð F-D-B-G-H. Til þess að auðvelda inntónun er nauðsynlegt að vita hvernig hljómur er í gangi hverju sinni, það er ekki nóg að nota bara eyrun af því að þá verður maður of seinn. Sama á við þegar maður spilar í hljómsveit og horfir ekki á stjórnandann, ef maður fylgir bara eyrunum verður maður of seinn, sérstaklega brassleikarar sem stija aftast.
Jæja, star trek og svo skólinn

Monday, November 10, 2008
Ný vinnuvika
Eftir að hafa tekið mér algeran frídag á sunnudeginum þá er ég tilbúinn til þess að takast á við þau verkefni sem vinnuvikan ber í skauti sér.
Það sem liggur fyrir er að klára að skrifa verkefnislýsingu fyrir tónleikana sem ég er að skipuleggja þann 14. febrúar. Helsta ljónið í vegi mínum er skrifstofubáknið í skólanum mínum. Það tekur allt rosalega langan tíma og enginn virðist vita neitt í sinn haus. Allt verður líka að fara hárréttar leiðir. Það verður að panta tíma til þess að spyrja hvort einhver sé við og svo framvegis.
Umfram það þarf ég að undirbúa voorspelavond sem verður núna á þriðjudaginn. Ég á að spila fyrsta kafla í Casterede sónötunni, ég er nokkuð sjálfstraustur á að ég muni skila góðu verki þó að sjálfsögðu hættir maður aldrei að ýta á sig að gera betur.
Ég þarf að halda áfram að gera píanó úrdrátt af Skálholtsmessunni svo hægt sé að hafa æfingar með söngvurunum.
Ég þyrfti helst að finna tíma til þess að klára eina útsetningu svo ég haldi mér á skynsamlegu róli í útsetningartímanum.
Og svo bara að greina, greina og greina. Þarf að finna mér nótur af Tristan and Isolde eftir Wagner. Nóturnar voru ekki til í nótnabúðinni góðu við Concertgebouw. Það er algjörlega ótækt að vinna nákvæma greiningarvinnu á ljósrit þannig að einhvern veginn verð ég að redda þessu.
Ég er búinn að vera ansi fastur við tölvuna síðastliðna daga við að vinna og ég er farinn að finna fyrir því í höndunum. Þarf að taka mér pásur við og við til þess að liðka puttana.
Jæja, ætla að gera smá píanóúrdrátt törn núna, í svona klukkutíma, fyrir morgunmatinn.

Wednesday, November 5, 2008
Nýr forseti í Bandaríkjunum
Ari fyrstur með fréttirnar eins og ávallt.
Kosningasjónvarpið hafði samt óþægilega aukaverkun, ég svaf algjörlega yfir mig og missti af tveimur tímum. Kemur samt ekki að mikilli sök en dáldið leiðinlegt. Ég ætla nú ekki að segja hve mikið ég svaf yfir mig, en það var nógu andskoti mikið.
Ana vinkona mín á afmæli í dag og af því tilefni bauð hún mér í litla veislu á sínu heimili, fer þangað eftir tæpa 2 tíma. Þangað til kíki ég á alla fréttamiðla beggja megin atlantshafsins og tékka á viðbrögðum við þessum sögulega sigri Obama.
Ég held að þessar kosningar hafi sýnt það að þegar fólk tekur sig til og kýs þá getur hægri stefna repúblikanaflokksins ekki borið sigur úr býtum.
Það var hálf vandræðalegt að horfa á CNN í gær þegar talað var við fylgismenn Repúblikana, það eina sem þeir virtust hafa að segja var að Obama væri ekki með nógu skýra stefnu fyrir öryggi landsins. Þeir virtust ekki sjá það að með minnkandi stríðsrekstri þá fækkar óvinum sjálfkrafa. Með því að minnka við einn þátt eykst annar þáttur.
En nú er ég bjartsýnn fyrir framtíðina.

Tuesday, November 4, 2008
Gloria
Eftir annasama helgi þá drattaðist ég ekki á lappir fyrr en um 2 leytið á mánudeginum. Hafði engan tíma fyrir sturtu því ég var að verða of seinn í skólann. Vildi að sjálfsögðu ekki missa af Wagner tímanum.
Eftir wagner tímann þá var því miður brass kvintet æfing sem er gjörsamlega að gera mig bandbrjálaðan og gaga. Ég bara á enga samleið með fólkinu sem ég er að spila með, hvorki spilanlega né félagslega. Algjör pína.
Er eins og er að taka smá greiningartörn. Hef mikla þörf núna fyrir að skoða nótur og helst að hafa ekki mikil samskipti við umheiminn og best væri að geta gleymt básúnunni í nokkra daga. Það getur því miður ekki gerst alveg þannig en ég geri mitt besta.
Ég er eins og er að greina Gloríukaflann úr Skálholtsmessunni og hef bara gaman að. Eftir smá rifrildi við pabba er ég búinn að taka skýringu hans á hækkaða hálfminnkaða fyrsta sætinu í sátt þó að mín útgáfa á fimmsexundar Tristan hljómnum er vissulega miklu áhugaverðari. En eftir að hafa hamrað þetta á píanóið í svona hálftíma þá komst ég á þá skoðun að pabbi var að hugsa um hálfminnkaða hljóminn í staðinn fyrir moll með minnkaðri 7und. En hann skrifaði það nú ekki þannig, bölvaður.
Það er dáldið gaman að greina verk sem maður hefur hlustað svona oft á og núna er ég í fyrsta skipti verulega að taka textann með í reikninginn. Og skoða hvernig pabbi breytir músíkinni eftir því hver skilaboð textans eru. Og snörp módulasjón í intróinu á fjórða sætið er mergjuð þó enginn sé undirbúningurinn svo kalla megi. Hálfgerð Eurovision módulering, sorry pabbi.
Það er náttúrulega dáldið forskot að geta hóað í tónskáldið svona við og við þegar maður er að greina, og eiginlega hálfgerð forréttindi þó að sjálfsögðu það er miklu auðveldara þegar tónskáldið er bara látið og er ekkert að skipta sér að því hvernig maður túlkar tónlist þess.
Jæja, en ég verð að hald áfram, can´t waste the momentum eins og maður gæti kannski sagt á ensku ef maður er í stuði og íslensku kunnáttan er af skornum skammti.
nætnæt

Saturday, November 1, 2008
John Cage
Jæja, ég náði nú að komast á æfinguna í Utrecht og þar fékk ég nótur af hinum rómaða píanókonsert John Cage en básúnupartinn má sjá Christian Lindberg flytja á youtube undir nafninu Solo for the slide trombone. Mergjað verk sem ég þarf að læra á 2 dögum.
Það góða við þetta gigg er að ég fæ borgað í reiðufé. ca. 300 evrur. Það er nú velkomið á þessum síðustu og verstu tímum.
Það var nú dáldið fyndið og skemmtileg tilviljun að þegar ég var að leita að réttu götunni í Utrecht þá sá ég 2 íslendinga, Hrein myndlistarmann og konuna hans. Algjör tilviljun og saga til næstu heimsálfu.
Það er svo sem ekki mikið meira sem ég þarf að æla út úr mér að sinni.
Lifi makríllinn.

Subscribe to:
Posts (Atom)