Friday, August 31, 2007

Aftur í gírinn

Ég og Grímur fórum á stórbrotna tónleika í gærkvöldi. Þriðji strengjakvartett Brahms og klarinettukvintett sama tónskálds. Jerusalem strengjakvartettinn og Martin Fröst voru flytjendurnir.

Ég á nú alltaf samt erfitt með að fara á tónleika sem þessa og sjá vesalings hljóðfæraleikarana þjösnast á hljóðfærunum og finna aldrei fyrir því að maður sé umlukinn af hljóði. Þess verður auðvitað að geta að þetta var strengjakvartett og þannig grúppa hefur að sjálfsögðu ekki yfir jafn mikilli hljómbreidd að ráða eins og til dæmis brass kvintett.

En túlkunin á verkunum var til fyrirmyndar og á Martin Fröst skilið allt það lof sem hann fær. Hann er framúrskarandi músíkant.

Að loknum tónleikunum fórum við á Lusthof með krökkum úr klarinettubekknum. Grímur er náttúrulega nýji gaurinn í bekknum og fellur hann bara býsna vel inní hópinn. Reyndar í minnihluta, bæði hvað varðar kynferði og kynhneigð.

Í dag hjólaði ég svo frá skólanum og á nýja heimilið mitt í Diemen. Þetta er nú slatti af malbiki sem maður þarf að hjóla á en mjög skemmtileg leið og falleg. Veit nú ekki hvort maður nennir að hjóla hana oft á dag og alls ekki í rigningu. Það eru auðveldar almenningssamgöngur héðan og niður í bæ, það er gott.

Ég er smám saman að koma mér aftur í spilagírinn. Er búinn að spila smá í dag. Reyndar með æfingadempara svo ég geri ekki blessaða nágrannanna gráhærða fyrir aldur fram.

daag

No comments: