Monday, November 24, 2008

10 dögum síðar

Nú verðið þið að afsaka bloggleti mína, sem hefur reyndar ekkert með leti að gera, einfaldlega búið að vera brjálað að gera.

Píanóúrdrátturinn hefur fengið að mæta afgangi núna á síðustu dögum vegna smá greiningarverkefnis sem ég er enn að vinna að. Ég átti reyndar að skila því af mér í dag en fékk smá frest. Ég er semsagt að greina lokasenuna í Tristan og Isolde. Ég er búinn að greina hljómfræðina en til þess að uppfylla mínum skilyrðum um góða greiningu þá á ég eftir að útskýra hana, ég veit hvað gerist en ég á enn eftir að finna út hvernig það gerðist. Og af því að tónlistin er svo nátengd dramanu þá get ég líka pælt í því af hverju það gerist svona en ekki hinsegin.

Björk hélt upp á afmælið sitt á laugardagskvöldið og var diskóþema í því og haldið hjá Grími. Ég klæddi mig í jakkafötin og í bleika skyrtu og stal senunni með fáséðum tilburðum á dansgólfinu. Allavega að mínu mati. Andreas kom reyndar sterkur inní en hélt ekki alveg við mig. Að mínu mati.

Það voru brasskvintet tónleikar í gær. Endalok á hræðilegum part af þessu skólaári. Tónleikarnir voru samt bara fínir.

Ég hef samt voða lítið meira að segja, hef gert voðalega lítið af mér. Bara verið heima og greint og dundað mér. Engin fyllerí, því miður. En næsta helgi verður flott, engir tónleikar ;)

Geri nú eitthvað af mér sem verður fréttnæmt,

Ari

2 comments:

Anonymous said...

Gakktu samt hægt um gleðinnar dyr. - Þú verður að skila þér í heilu lagi í jólafrí!

Anonymous said...

Ekkert að afsaka

Atli