Saturday, October 10, 2009

rúmlega

Ætla að taka á mig jákvæða rúmlegu í dag, allavega part af deginum. Greina og lesa inná milli. Ef leiðinn tekur yfir þá bara fer ég í skólann. Æ, Hvað helgar geta verið notalegar svona þegar maður vaknar bara þegar maður vaknar og gefur sér nægan tíma til þess að lesa þær fréttir sem í boði eru og maður hefur áhuga á.

Hmm, ætli ég kíki bara ekki á eitt stykki kastljós þátt líka, þó vissulega sé nú stundum gott að fjarlægjast lætin á Íslandi þá má maður nú ekki alveg hætta að fylgjast með.

Jæja, rúmlega mín hefst þá formlega innan 5 mínútna.

1 comment:

Helga said...

Við erum sko ekki svona löt hér á Íslandi. Allt í botni í fögru vetrarveðri.