Sunday, December 6, 2009

keypti mér föt

Vá, ég gerði undur og stórmerki um daginn. Ég keypti mér jakkaföt, þau líta bara ansi vel út og passa. Galdurinn er að gefa sér lítinn tíma, inn og út á 6 mínútum. Vissulega réði verðlagið einhverju, 150 evrur var það sem ég var tilbúinn til að greiða og það gekk eftir.

Annars nýt ég þess bara að vera heima hjá mér í dag, síðasta vika var ansi strembin og var iðulega í skólanum frá 8 á morgnana til 9 á kvöldin, og iðulega sofnaður uppúr tíu.

Opnaði póstkassann áðan og sá þar morgunblað sem mamma hefur greinilega sent mér, takk fyrir það. Það er nú fátt sem jafnast á við það að lesa dagblað uppí rúmi um helgi.

Hljómsveitarprojektið byrjar á fullu á morgun, Mozart sálumessan í nýrri útgáfu gerðri af Klemens Cemme sem er tónfræðingur og kennari í skólanum mínum. Kennir mér meðal annars Debussy greiningu. Hann er dáldið mergjaður á þann hátt að hann er álíka vel að sér í klassískum og jazz fræðum. Af því tilefni er helmingurinn af nemendunum í þessum áfanga jazznemendur. Það er náttúrulega bara mjög skemmtilegt því að bakgrunnur nemendanna er svo fjölbreyttur.

Í gær fór ég á æfingu í einu projekti sem kunningi minn er með, jazz-project. Mjög skemmtilegt að vinna með þeim, við erum 7 í allt. 2 básúnur, 2 saxafónar, 1 trompet, kontrabassi og trommur. Kannski fer ekkert alltof vel með varirnar svona á meðan Mozart projektið er í gangi, en áhugavert og það er það sem máli skiptir. Þessir tónleikar verða svo þann 16. desember.

Mozart tónleikarnir verða 11. 12. og 13. desember. Þannig að það er nóg að gera hjá mér áður en ég kem heim í jólafrí þann 18. des.

Er farinn að hlakka dáldið til, tímabært að skipta um umhverfi og þurfa ekki að hugsa um matarmál sjálfur.

Talandi um matarmál, er glorhungraður og ætla að fá mér brauð.

Lifið heil.

1 comment:

Helga said...

Er dagsetning á heimferð örugglega á hreinu??