Sunday, September 2, 2007

Tr

Hjólaði í skólann í dag. Villtist á leiðinni og var í svitabaði þegar ég loksins komst í skólann. Þá var klukkutími í lokun sem var svo sem í lagi þar sem ég er búinn að vera í vikufríi frá hljóðfærinu og ekki hægt að byrja strax með látum.

Þegar skólanum var lokað fór ég með Loes, Jos og Jan á kaffihús og fékk ég mér heitt súkkulaði. Það var stórfurðulegt. Í staðinn fyrir heitt súkkulaði fékk ég heita mjólk og súkkulaðibita sem ég átti að láta bráðna ofan í bollanum. Fer ekki aftur á þetta blessaða kaffihús.

Eftir þessa misheppnuðu kakódrykkju rölti ég aðeins um í Vondel-garðinum og varð fullur andagiftar þegar ég sá stork með unga sína.

Þá lá leiðin á uppáhalds staðinn minn í Amsterdam þar sem ég sá Barcelona vinna 3-1. Fyrri hálfleikurinn var stórbrotinn. Ronaldinho allt í öllu. Skoraði tvö, lagði upp þriðja og lagði upp þvílík dauðafæri fyrir samspilara sína. Hann lítur mun betur út en allt tímabilið í fyrra.

Þá tók við að hjóla heim. Í þetta skiptið villtist ég ekkert og hjólaði greitt en ferðin tók mig tæpar 40 mínútur. Ef það verður þannig í vetur að ég hjóli tæpa 20 km á hverjum degi þá verð ég nú að passa mig á því að hverfa ekki. En mér líður frábærlega við að fá þessa hreyfingu. Og það besta er að hún skilar manni einhverju áleiðis. Maður kemst á leiðarenda. :)

1 comment:

Anonymous said...

Fyrirsögnin veldur heilabrotum ...