Thursday, August 23, 2007

Útvarp

Í dag var tekið við mig útvarpsviðtal. Nýr þáttur er að hefja göngu sína á rúv sem fjallar um hin sinfónísku hljóðfæri. Ég gerðist sendiherra básúnunnar þennan hálftíma sem viðtalið tók. Það verður reyndar allt klippt niður og skorið við nögl þar sem básúnan fær aðeins athygli í 13,5 mínútur.

Ég þurfti að fá lánaða básúnu hjá honum Haraldi fyrrum nemanda mínum en ég gleymdi minni eigin og hann var sá básúnuleikari sem bjó næst staðsetningu viðtalsins.

Eins og alltaf þá komst maður ekki í nærri því allt sem maður ætlaði sér að fara yfir en maður er nú orðinn vanur því.

Þetta var svona dáldið eins og samanþjappaður tími í hljóðfærafræði en ég hef þurft að kynna básúnuna í tveimur slíkum tímum, annars vegar hjá Tryggva í Tónó og hins vegar hjá Úlfari í Listaháskólanum.

Nú lýtur allt út fyrir það að ég og Grímur munum verða sambýlingar í Amsterdam í vetur. Það er náttúrulega gargandi snilld, eins og bíómyndin.

Í gærkvöld fórum við feðgarnir að borða á grænmetisstað. Það var svona álíka spennandi og að fá heilahristing og verða að fá næringu í æð. En pabba fannst það gott. Svona geta skyldmenni verið ólík. Það var alveg ótrúlegt að horfa á mat fara upp í mann og tyggja en finna samt ekki fyrir neinu bragði eða lykt. Mér leið bara illa.

Eftir matinn fórum við að hitta Sigga Manna frænda minn sem var nýkominn til landsins frá Nepal. Ég þurfti nú mest að sinna frændsystkinum mínum og var það bara stuð nema ég fékk sko ekki leyfi til þess að leika ekki við þau. Þau kúguðu mig, litlu þrjótarnir.

2 comments:

Anonymous said...

Góður!

Anonymous said...

Eitthvað að frétta frá Amsterdam?