Í gær var síðasta sýningin á Don Giovani og enn og aftur var Elmar æðislegur. Gæsahúð dauðans í hvert skipti sem hann opnaði á sér munninn.
Eftir sýninguna fékk ég mér svo pizzu með Johan og Maarten í tilefni af síðasta degi okkar saman þangað til í ágúst. Grímur, Margreet og Fraukje fengu að fljóta með. Það var voða kósý og var fín upphitun fyrir afmælisveislu Lauru, trompetstelpu en hún var að verða 20 ára.
Eins og brassleikurum er sæmilegt þá keyptum við að sjálfsögðu afmælisgjöf handa henni í búð sem sérhæfir sig í hjálpartækjum ástarlífsins. Réttara sagt þá sáum ég og Margreet um þann hluta, hitt fólkið var aðeins of viðkvæmt.
Það var frekar fínt í afmælinu sem var haldið á bar í rauða hverfinu. Þvílíkur munur eftir að reykingabannið tók gildi núna 1. júlí. Ég kom ekki heim fyrr en að verða 8 í morgun. Ákvað að hjálpa honum Grími andlega með að undirbúa sig fyrir Íslandsförina með viðkomu í Kaupmannahöfn.
Ég lagði mig svo þegar ég kom heim í ca. 4 tíma og kveikti svo að sjálfsögðu á BBC. Tveir undanúrslitaleikir í einliðaleik karla sem ég vildi sjá. Eins og flestir bjuggust við unnu Federer og Nadal sína leiki nokkuð örugglega þó að Nadal vann sinn leik ekki alveg með sama glæsileik og Federer en hann er reyndar ekki eins sterkur og Federer á grasi þó að hann hafi stórbætt sig á undanförnum misserum. Það var allavega voða gaman að sjá hann spila.
Núna er allt að verða tilbúið fyrir síðustu kvöldmáltíðina hérna í Diemen. Marta er að flytja út og þetta er síðasta kvöldið okkar sem meðleigjendur.
Maturinn er framreiddur.
Friday, July 4, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment