Monday, July 21, 2008

Kominn tími til

jæja, nú er ég búinn að vera á landinu í 2 vikur að ég held og kominn tími til að blogga smá.

Ég semsagt flaug heim þann 5. júlí og var dáldið sorglegt að kveðja Mörtu, en hún átti flug á svipuðum tíma þannig að við vorum saman á flugvellinum. Næsta merkilega sem gerðist í mínu lífi var að ég fór á tónleika Ungfóníu þann 7. júlí í Háskólabíói. Hápunkturinn á þeim tónleikum var verk eftir Benna Hemm Hemm, gaman líka að sjá viss kynslóðaskipti í Ungfóníu.

Pabbi hefur verið drjúgur í að misnota hæfileika mína í hljómfræði og hef ég þurft að kenna slatta fyrir hann. En það er bara voða gaman og þroskandi þannig að ekki kvarta ég yfir því.

Aðra helgina mína hérna var hin sískemmtilega útilega Myndarvélarinnar. Hápunkturinn á þeirri ferð er fótboltaleikur milli feðra og sona. Synirnir unnu í leik sem helst verður minnst fyrir mikillar rigningar og pollamyndunar. Ég fór í bæinn á laugardagskvöldinu til þess að geta hitt Katrínu. Hún er sem stendur í vinnu á Kirkjubæjarklaustri og þetta var væntanlega eina tækifæri mitt til þess að hitta hana í sumar.

Hápunktur sumarsins hingað til eru tónleikar Christian Lindberg og Gunnars Idenstram í Hallgrímskirkju fyrir viku. Æðislegt prógram og komu báðir mér skemmtilega á óvart með hæfni sinni og frumleika.

Eins og er er ég einn í kotinu vegna gönguferðar foreldra minna vestur á ströndum og get ég ekki neitað að það er dáldið tómlegt. Íbúðin er aðeins of stór fyrir einn. Ekki hjálpar að Grímur hefur verið fjarverandi og Katrín á klaustri og Jói ókominn. Hef samt hitt nokkra vini mína þannig að lífið er langt frá því að vera glatað. Varð samt dáldið einmana í dag bara enda bara þannig andi yfir vötnum að fólk vildi helst vera heima hjá sér enda mjög þungt yfir höfuðborginni.

Valborg hringdi svo í mig í kvöld og var það þvílík sæla að heyra í henni, þrátt fyrir að msn spjall á öðrum vígstöðvum hefði truflað samtalið aðeins. En hún fyrigefur mér það vonandi.

Nú er bara að fara í rúmið, kennsludagur á morgun og fótbolti eftir það. Svo bara að æfa sig eitthvað og halda áfram að koma sér í Ligeti form.

Lifið heil

No comments: