Nú fer ég af landi brott núna á föstudaginn og er ég lúmskt farinn að hlakka til þó það sé að sjálfsögðu æðislegt að vera hérna á Íslandi.
Þetta er búið að vera ansi gott sumar, hef getað sinnt tónlistinni útí eitt og svo auðvitað hvílt mig vel inná milli. Ísafoldartónleikarnir eru liðnir og tókust þeir frábærlega og mætti mikið af fólki. Formið sem ég þurfti að vera í fyrir þá tónleika var ansi óvenjulegt sökum mikils tónsviðs.
Í næstu viku verður það Bruckner messa útí Hollandi og er það öllu eðlilegri spilamennska þó erfitt sé það fyrir úthaldið. Mikið af háum og löngum nótum. Er að undirbúa mig fyrir það eins og er, einnig er ég byrjaður að æfa Arabenne eftir Christian Lindberg en ég á að spila og stjórna því á útskriftartónleikum mínum frá Amsterdam eftir tæp 2 ár. Það verk er illspilanlegt en maður verður að setja markið hátt í þessum bransa.
Þegar ég fer út eftir nokkra daga má búast við tíðari bloggskrifum.
Ari
Monday, August 11, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Gott að þú birtist hér á ný!- Hélt að þú hefðir flutt þig um set í netheimum. -
Post a Comment