Eftir annasama helgi þá get ég ekki beðið eftir því að komast í smá frí frá daglegu amstri. Er að skipuleggja ferð til Kaupmannahafnar til þess að heimsækja bróður minn og vona ég svo sannarlega að ég geti farið. Ég þarf að skipta smá um umhverfi.
Ég var reyndar heima í dag, gat bara ekki fyrir mitt litla líf farið í skólann. Það er reyndar búið að vera voðalega fínt, hef komið ansi miklu verk hvað varðar skipulagningar og útsetningar.
Ég er síðan tiltölulega nýkominn úr smá kvöldskokki. Ég bara varð að hreyfa mig aðeins og ég komst að því að ég er í skelfilegu formi. Ja reyndar er formið svo sem ekkert skelfilegt, en hlaupaformið er lélegt. Lappirnar á mér eru bara ekki ætlaðar til hlaupa. Jæja, en þetta var samt gaman og ég hvíldist í huganum þrátt fyrir að ég væri að murka lífið úr hægri fótleggnum.
Veðrið í Amsterdam hjálpar ekki beint við hugarástand mitt í dag, raki og meiri raki. Ekki beint mótiverandi. En jæja, það er bara áskorun eins og hvað annað.
Pabbi kom í heimsókn um helgina og við skruppum á völlinn saman og sáum íslenska landsliðið tapa fyrir því Hollenska. Ég var samt stoltur af strákunum, þeir spiluðu fínan fótbolta í seinni hálfleik og hefðu með smá heppni getað potað inn einu marki. Það er alltaf þvílík upplifun að fara á fótboltaleik á svona stórum velli. Ég verð að gera þetta aftur, maður gjörsamlega endurnærist. Þótt persónulega hefði ég viljað sleppa því að sitja samtals 6 klst í lest.
Tvær lestarlínur til Rotterdam voru óvirkar og þurftum við að fara í gegnum Eindoven til þess að komast til Rotterdam frá Amsterdam. Við vorum komnir heim að verða hálf þrjú á sunnudagsmorgun og ég þurfti að vakna nokkrum tímum síðar til þess að fara á gigg með CvA brass alla leið til Drachten, sem er 1 og hálfur tími í bíl frá Amsterdam. Þeir tónleikar gengu bara ágætlega og voru tónleikagestir mjög þakklátir að heyra Jerúsalem.
Í gær hitti ég svo Andreas aftur eftir langan aðskilnað og tókum við hinn fullkomna mánudag. Ég hitti hann um klukkan 5 á Dam torginu og svo fórum við á kráarrölt. Einn belgískur bjór á hverri krá þannig að við kynntumst þó nokkrum knæpum. Svo lá leiðin í pizzu á leidseplein þar sem við svolgruðum í okkur rauðvíni hússins og þá var komið að tramma ferð heim til Diemen þar sem beið okkar Star Trek og Gin og Tónik. Hinn fullkomni mánudagur.
Ég tók smá í alt básúnuna í dag, fékk smá fráhvarfseinkenni. Það var ótrúlega gaman að spila á hana. Gekk líka furðuvel þrátt fyrir að varirnar séu í smá fokki. :)
Á morgun er svo hápunktur vikunnar þegar indverski rytmatíminn er. Það er reyndar bölvað að tíminn sé klukkan 10 að morgni til þannig að ég er alltaf rosalega myglaður. En ég er alltaf fljótur að taka upp gleði mína þegar við byrjum að þjösnast á rytmanum. Það er reyndar smá galli að maður getur eiginlega ekki gert neitt næstu klukkutímanna eftir 2ja tíma rytmasessíón. Kollurinn er svo grillaður.
Jæja, nú er kollurinn minn að grillast af bloggskrifum þannig að best er að láta þetta nú gott heita.
Tuesday, October 14, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ hlaupagikkur og drykkjusvoli! -
Áhyggjur af íslensku efnahagslífi trufla greinilega ekki daglegt líf ykkar þarna í Hollandi.
Ekki kominn með orku til að skrifa á ný?
Post a Comment