Jæja, það kom að því að ég fékk ánægjulegar fréttir varðandi febrúarprojectið mitt. Ég fæ inni í Bernard Haitink salnum laugardaginn 14. febrúar. Það eru viss tímamót því að nú er ég viss um að vera með húsnæði og get hagað málum mínum í samræmi við það.
Ég semsagt hitti DOK leiðbeinanda minn í dag, bara á ganginum í skólanum, og hann sagði mér einnig að skýrslan sem ég hafði skilað inn hefði verið góð.
Það er ansi kalt núna þennan nóvembermorgun í Diemen, held ég þurfi jafnvel að fara í flíspeysuna.
En já, ég þarf að byrja að vinna smá. Píanóúrdrátturinn gerir sig ekki sjálfur, það er alveg á hreinu.
A
Friday, November 14, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Er þessi salur í skólanum?
Salurinn er í skólanum.
Ari
Post a Comment