Eftir annasama helgi þá drattaðist ég ekki á lappir fyrr en um 2 leytið á mánudeginum. Hafði engan tíma fyrir sturtu því ég var að verða of seinn í skólann. Vildi að sjálfsögðu ekki missa af Wagner tímanum.
Eftir wagner tímann þá var því miður brass kvintet æfing sem er gjörsamlega að gera mig bandbrjálaðan og gaga. Ég bara á enga samleið með fólkinu sem ég er að spila með, hvorki spilanlega né félagslega. Algjör pína.
Er eins og er að taka smá greiningartörn. Hef mikla þörf núna fyrir að skoða nótur og helst að hafa ekki mikil samskipti við umheiminn og best væri að geta gleymt básúnunni í nokkra daga. Það getur því miður ekki gerst alveg þannig en ég geri mitt besta.
Ég er eins og er að greina Gloríukaflann úr Skálholtsmessunni og hef bara gaman að. Eftir smá rifrildi við pabba er ég búinn að taka skýringu hans á hækkaða hálfminnkaða fyrsta sætinu í sátt þó að mín útgáfa á fimmsexundar Tristan hljómnum er vissulega miklu áhugaverðari. En eftir að hafa hamrað þetta á píanóið í svona hálftíma þá komst ég á þá skoðun að pabbi var að hugsa um hálfminnkaða hljóminn í staðinn fyrir moll með minnkaðri 7und. En hann skrifaði það nú ekki þannig, bölvaður.
Það er dáldið gaman að greina verk sem maður hefur hlustað svona oft á og núna er ég í fyrsta skipti verulega að taka textann með í reikninginn. Og skoða hvernig pabbi breytir músíkinni eftir því hver skilaboð textans eru. Og snörp módulasjón í intróinu á fjórða sætið er mergjuð þó enginn sé undirbúningurinn svo kalla megi. Hálfgerð Eurovision módulering, sorry pabbi.
Það er náttúrulega dáldið forskot að geta hóað í tónskáldið svona við og við þegar maður er að greina, og eiginlega hálfgerð forréttindi þó að sjálfsögðu það er miklu auðveldara þegar tónskáldið er bara látið og er ekkert að skipta sér að því hvernig maður túlkar tónlist þess.
Jæja, en ég verð að hald áfram, can´t waste the momentum eins og maður gæti kannski sagt á ensku ef maður er í stuði og íslensku kunnáttan er af skornum skammti.
nætnæt
Tuesday, November 4, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Þessi brasskvintett hlýtur að vera eitthvað félagslega fatlaður. - Ekki spenntur fyrir hálfminnkuðum hljómi í staðinn fyrir moll með minnkaðri 7und?
Uss, thad er alveg greinilegt ad thessi hálfkærings-falsk-moll-hljómagangur er ekkert líkur 7up
Post a Comment