Jæja, ég náði nú að komast á æfinguna í Utrecht og þar fékk ég nótur af hinum rómaða píanókonsert John Cage en básúnupartinn má sjá Christian Lindberg flytja á youtube undir nafninu Solo for the slide trombone. Mergjað verk sem ég þarf að læra á 2 dögum.
Það góða við þetta gigg er að ég fæ borgað í reiðufé. ca. 300 evrur. Það er nú velkomið á þessum síðustu og verstu tímum.
Það var nú dáldið fyndið og skemmtileg tilviljun að þegar ég var að leita að réttu götunni í Utrecht þá sá ég 2 íslendinga, Hrein myndlistarmann og konuna hans. Algjör tilviljun og saga til næstu heimsálfu.
Það er svo sem ekki mikið meira sem ég þarf að æla út úr mér að sinni.
Lifi makríllinn.
Saturday, November 1, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Þú hefur ekki rekist líka á Hrein tölvufræðing og Halldóru konu hans?
Post a Comment