Thursday, November 13, 2008

Líf píanóúrdráttargaursins

Ég er enn að vinna í því að gera píanóúrdrátt af Gloriu kaflanum úr Skálholtsmessunni. Þetta er alveg svakalega mikið verk. Vann í einn og hálfan tíma og tókst að klára held ég 2 mínútur af tónlist. Er nú samt vel á veg kominn með þennan kafla og ég ætti bara að þurfa svona 2 klst í viðbót til þess að setja inn allar nóturnar. Aðra 2 tíma til þess að setja inn texta og styrkleikamerki og ýmis smáatriði.

Það er alveg ótrúlega hollt að gera svona píanóúrdrátt. Maður kynnist verkinu rosalega vel á þann hátt að maður verður að ákveða hvað er mikilvægt hverju sinni. Hvar liggur tónlistin, hvar er skrautið?

Svona líf á vel við mig, grúsk, verða samvaxinn tónsmíðinni.

Klst síðar.

Nú er ég hins vegar að greina Jón Leifs verkið. Sjötta tilbrigðið er dáldið sérstakt að því leyti að það eru eingöngu dúrhljómar í kaflanum. Í fyrstu tveimur töktunum eru sem sagt í þessari röð F-D-B-G-H. Til þess að auðvelda inntónun er nauðsynlegt að vita hvernig hljómur er í gangi hverju sinni, það er ekki nóg að nota bara eyrun af því að þá verður maður of seinn. Sama á við þegar maður spilar í hljómsveit og horfir ekki á stjórnandann, ef maður fylgir bara eyrunum verður maður of seinn, sérstaklega brassleikarar sem stija aftast.

Jæja, star trek og svo skólinn

1 comment:

Anonymous said...

Líf grúskarans er greinilega æsispennandi!