Ari fyrstur með fréttirnar eins og ávallt.
Kosningasjónvarpið hafði samt óþægilega aukaverkun, ég svaf algjörlega yfir mig og missti af tveimur tímum. Kemur samt ekki að mikilli sök en dáldið leiðinlegt. Ég ætla nú ekki að segja hve mikið ég svaf yfir mig, en það var nógu andskoti mikið.
Ana vinkona mín á afmæli í dag og af því tilefni bauð hún mér í litla veislu á sínu heimili, fer þangað eftir tæpa 2 tíma. Þangað til kíki ég á alla fréttamiðla beggja megin atlantshafsins og tékka á viðbrögðum við þessum sögulega sigri Obama.
Ég held að þessar kosningar hafi sýnt það að þegar fólk tekur sig til og kýs þá getur hægri stefna repúblikanaflokksins ekki borið sigur úr býtum.
Það var hálf vandræðalegt að horfa á CNN í gær þegar talað var við fylgismenn Repúblikana, það eina sem þeir virtust hafa að segja var að Obama væri ekki með nógu skýra stefnu fyrir öryggi landsins. Þeir virtust ekki sjá það að með minnkandi stríðsrekstri þá fækkar óvinum sjálfkrafa. Með því að minnka við einn þátt eykst annar þáttur.
En nú er ég bjartsýnn fyrir framtíðina.
A
Wednesday, November 5, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
ég er líka bjartsýn, þrátt fyrir allt.
Post a Comment