Thursday, February 19, 2009

Icelandic Music Day

Það tókst!

Ég held ég geti án nokkurs vafa sagt að ég hafi náð hápunkti mínum sem tónlistarmaður síðastliðinn laugardag þegar ég stjórnaði tónleikum hér í Amsterdam með þremur íslenskum verkum. Stefán Jón Bernharðsson kom að spila hornkonsert eftir Huga Guðmundsson og hann var hreint út sagt stórkostlegur. Hin verkin tókust líka frábærlega vel, Variazoni Pastorali eftir Jón Leifs, og Skálholtsmessan hans pabba.

Það gladdi mig óstjórnlega mikið hvað margir af vinum mínum voru til í að ferðast yfir langan veg til þess að taka þátt í þessu verkefni mínu. Jóhann Nardeau kom frá París, slíkt hið sama gerði Sigurjón B. Daðason. Sólrún, fyrrverandi kærasta mín, Gunnarsdóttir kom frá London og Ella Vala Ármannsdóttir frá Basel. Við bættust svo íslendingar sem eru við nám hér í Hollandi, í Amsterdam, Utrecht og Groningen.

Það toppaði svo allt að pabbi og amma komu að hlusta á tónleikana og taka þátt í þessari upplifun með mér.

Það er það sem það var, upplifun.

Allir sem ég hef talað við sem tóku þátt í þessu verkefni mínu orðuðu það að þau hafi fundið fyrir einhverjum krafti á tónleikunum sem er alltof sjaldan til staðar. Eina ástæðan sem ég finn sem getur útskýrt það er að það var kominn hópur af fólki sem naut þess að spila tónlist saman. Þegar það gerist þá eru manni allir vegir færir.

Ég var allavega mjög stoltur af öllum sem tóku þátt og er ég þeim ævinlega þakklátur.

No comments: