Wednesday, February 25, 2009

Mate

Fótbolti er allra meina bót.

Ég horfði á viðureign Inter og Man Utd fyrr í kvöld og hafði bara gaman af. Jafntefli voru í það heila held ég sanngjörn úrslit, Manchester voru betri í fyrri hálfleik en Inter í þeim síðari. Ég ætlaði mér reyndar að horfa á Lyon-Barcelona, en útsendingin á netinu var fyrir neðan allar hellur en sem betur fer var Inter leikurinn sýndur í hollenska sjónvarpinu.

Annað kvöld er svo Real Madrid-Liverpool. Það verður æðislegt og hann verður sýndur í hollenska sjónvarpinu líka þannig að ég þarf ekki að hætta mér út úr húsi.

Í fyrramálið verð ég reyndar að fara niður í súrínamska konsúlatið og reyna að tala um fyrir fólkinu og redda mér vegabréfsáritun. Ég hef tekið frá 3 tíma til að standa í því veseni. Þá þrjá tíma sem opið er.

Eftir það þarf ég svo að leggjast í víking alla leið til Rotterdam, en Ivan mun kenna þar á morgun vegna annríkis. Náttúrulega skandall en þetta verður eini tíminn sem ég get fengið með honum áður en ég tek prófið mitt, þann 11. mars. Ég hef getað æft mig vel undanfarna daga þannig að ég er brattur. Spurning bara hvernig andlega hliðin verður á morgun eftir að hafa talað við talsmenn Súrínam í Amsterdam.

Líkamlega hliðin er reyndar líka smá spurningamerki og get ég því miður engum öðrum kennt um en sjálfum mér, ja og Andreasi. Málið var að þegar Andreas yfirgaf Holland og flúði í sældarlífið í Argentínu þá skildi hann eftir 4 kg af Mate. Mate er suður-amerískt te, mjög ríkt af koffíni og guarana. Fyrst þegar ég fékk að smakka hjá Andreasi þá steinrotaðist ég eftir nokkra sopa, svaf í 2-3 tíma og vaknaði svo og var vakandi í sólahring.

Ég semsagt blandaði mér þannig te rétt uppúr miðnætti í kvöld. Ástæðan var nú bara sú að það var hrollur í mér. Þetta var í fyrsta skipti sem ég hellti sjálfur uppá þetta ofur-te. Og úff, ég blandaði sterka blöndu. Þetta er svona tvöfalt sterkara eða jafnvel meira sem Andreas hellti uppá fyrir mig um daginn.

Æ, en það er svo gaman að láta reyna á líkamann. Þar sem ég drekk ekki kaffi þá gæti þetta orðið minn helsti koffíngjafi, fyrir utan kókið. Þetta er líka aðeins geðslegra en kaffi, finnst mér persónulega. Ekki sama ólykt.

Já, mér finnst vera vond lykt af kaffi. Ég hef aldrei fundið lykt af kaffidufti eða baunum sem mér finnst vera góð og hvetur mig til þess að blanda því við heitt vatn og hella því í mig. Lyktin af uppáhelltu mate er eins og heystían í hesthúsi en það vekur bara upp góðar minningar frá æskuárum mínum í hesthúsi afa míns.

Úff, ég held ég verði að gefast upp á þessum drykk í bili. Algjört eitur og ég sé fram á 2 sólahringa án svefns ef ég held áfram að sötra. Þannig að nú set ég bara star trek í gang og sofna, eða sofna ekki. En á lappir verð ég að komast í fyrramálið vegna vegabréfsáritunarinnar.

góðar stundir

eiturlyfjaneytandinn,

Ari

3 comments:

Anonymous said...

Ekki segja súrinamska ræðismanninum frá dópneyslunni .... þetta er nógu erfið barátta!

Anonymous said...

Þetta var ég!

Anonymous said...

Það sem þér dettur í hug...
Gaman að sjá líf hér aftur!