Monday, April 13, 2009

Nótt í hitabeltinu

Að lifa af nótt í hitabeltinu er afrek útaf fyrir sig. Það eru endalaus dýrahljóð, engisprettur og fuglar og moskítóflugur sem ráðast á mann í bílförmum. Moskítóflugurnar í Súrínam eru þó þægilegar að því leyti að þær eru svo litlar að þær vekja mann ekki á næturna. Maður verður fyrst var við mýið þegar maður vaknar morguninn eftir rauðflekkóttur.

Hitinn er óbærilegur og rakinn kæfandi. Nærbuxur virka sem snjógalli í hitabeltinu og einungis sterk siðferðiskennd og virðing við herbergisfélagann hélt nærhaldinu á sínum venjulega stað. Eftir nokkrar mínútur límast þær þó við líkamann, eins og allt sem líkamann snertir. Svitakirtlarnir eru fastir í vítahring sem endar ekki.

Í rúmið fer maður uppúr miðnætti og orðinn ansi ölvaður því drykkjarþörfin er meiri en í þægilegra loftslagi. Maður teygar auðveldlega lítra af volgu vatni til þess að halda í við svitakirtlana. Hiti dagsins hefur sljóvgað mann svo ómögulegt er að lesa og ekkert hægt að gera en að slökkva ljósin og stara uppí loftið og bíða svefnsins.

Maður sefur sem barn í hitabeltinu, vaknar á klukkutíma fresti. Hitinn gerir það að verkum að sjálfsbjargarhvötin er á fullu og öll óeðlileg hljóð magnast upp og maður hrekkur upp með andfælum við hvert ískur.

Um 3leytið er líkaminn sem nýstiginn uppúr sundlaug og hitastigið í algleymingi. Best að skella sér í sturtu og kæla sig niður og hálfpartinn þakkar maður fyrir það að ekki sé til heitt vatn.

Að sturtunni lokinni þá hugsar maður hvort hún hafi verið nauðsynleg því um leið og maður stígur út þá byrja svitakirtlarnir að hamast og maður er jafnblautur sem fyrr.

Svefninn sækir á mann en yfirgefur mann svo um 6leytið þegar sólrásin á sér stað og öll þau dýr sem sváfu vakna. Innfæddir fara í vinnuna og keyra á 90 km hraða einstefnugötur með hátalarana í botni. Bílflautan er partur af tungumáli innfæddra og sú tónlist sem þeir virða mest.

Maður liggur vakandi og bölvar í hljóði öllu sem hægt er að bölva, hitanum, rakanum, svitanum og hávaðanum.

Þannig er nótt í Súrínam.

1 comment:

Chrissie said...

haha gaman af þessu!
mér finnst hins vegar mjög róandi að heyra í dýrunm á næturna í útlöndum,en hins vegar eins gott að það voru ekki stórar moskítóflugurnar því að það er mjög pirrandi hljóð í þeim haha :)
en gott að þú ert heill á húfi og í fínasta lagi
elska þig Ari minn

knúsar
Chrissie