Sunday, June 1, 2008

Búinn á því í bili

Við héldum básúnukvartets tónleika í dag og ég verð að segja að ég er ansi feginn að þessu sé nú lokið í bili. Þó það sé nú alltaf gaman að spila á básúnuna þá hefur maður því miður ekki endalausa orku.

Í gær lenti ég í því að spila Scheherazade eftir Rimsky-Korsakoff með nemendahljómsveit hér í Amsterdam. Johan átti að spila en varirnar hans voru í fokki í gær þannig að ég hljóp í skarðið með engum fyrirvara. Það var mjög gaman bara. Flott verk.

En já að deginum í dag, tónleikarnir gengu bara voða vel. Visst reynsluleysi að okkar hálfu kom að vísu í ljós, sérstaklega með uppröðun á efnisskránni, mest krefjandi verkið varalega séð var frekar seint og því afskaplega erfitt að koma því til skila á sómasamlegan hátt, en það tókst svo sem ágætlega.

Eftir tónleikana bauð svo fjölskylda Johan okkur í hádegismat á kaffihúsi í indverska hverfinu. Að sjálfsögðu fengum við okkur nokkra belgíska bjóra í tilefni dagsins. Skömm var að því að eini Belginn í föruneytinu hélt sig við kókið.

Ég kom heim um klukkan fjögur í dag og gat lítið annað gert en að leggjast uppí sófa og horfa á Futurama og sofnaði svo yfir þættinum og svaf í tæpa tvo tíma. Löngu kominn tími á það reyndar.

Það er rosalega gott veður núna í Amsterdam og ég held ég skelli mér út á svalir á eftir með bók og sólgleraugu.

Undanfarna daga hef ég nær ekkert verið heima hjá mér og innkaup þess vegna dáldið setið á hakanum og nú sé ég að það eina matarkyns sem ég á er morgunkorn. Jæja, ég hef nú pantað mér pizzu af minna tilefni.

Það er reyndar nett pirrandi að ekki sé hægt að komast í búð á sunnudegi hérna.

Jæja, best að panta sér pizzu. Lesa bók eða horfa á Woody Allen mynd og fara svo á skikkanlegum tíma í rúmið til tilbreytingar.

Lifið heil.

No comments: