Elmar Gilbertsson er nafn sem fólk á vonandi eftir að heyra oftar í framtíðinni. Hann er nemandi í óperudeildinni í Den Haag og Amsterdam og fór þvílíkt af kostum í hlutverki Don Ottavio í uppfærslu deildarinnar á Don Giovani eftir Mozart. Sjaldan hef ég verið jafn stoltur af því að vera Íslendingur eins og þegar hann söng.
Ekki er mikið meira fréttnæmt úr mínu lífi annað en kannski það að ég sá heilan leik með Federer í dag á Wimbledon. Hann er þvílíkur guð. Hann spilaði gegn 31 árs gömlum frakka sem er númer 51 á heimslistanum og tók hann í kennslustund. Án þess þó nokkurn tíman að sýna af sér eitthvað yfirlæti. Allar gömlu stjörnurnar eins og Pete Sampras og Boris Becker segja að hugsanlega sé Federer besti tennisleikari sögunnar og án efa besti sendiherra íþróttarinnar.
Það rigndi smá á Wimbledon í dag og þá þarf að sjálfsögðu að gera hlé á mótinu og í hlénu var sýnd stutt mynd um Federer. Þvílík saga og þvílík inspírasjón sem ég varð fyrir.
Á morgun ætlum við básúnustrákarnir saman í bíó. The Incredible Hulk varð fyrir valinu að sjálfsögðu. Fyrsta bíóferð mín í Hollandi þar sem ég fer með einhverjum öðrum en fjölskyldumeðlimum og Grími, sem er nú reyndar hálfgerður fjölskyldumeðlimur. Eftir bíóferðina þurfum við svo að spila í óperunni aftur. Ég er nú orðinn dáldið þreyttur á lestaferðunum en svona er lífið og ekki batnar það ef maður kvartar mikið.
tími fyrir samloku
Saturday, June 28, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Leggjum nafn tenórsins á minnið! - Stutt í dvöl á lestarlausu Íslandi, mikið sem þú skalt njóta þess.
Post a Comment