Nú er gaman að lifa.
Það er nóg að gera. Í gærkvöldi bættist við eitt gigg, lokatónleikar hjá tónsmíðanemenda við skólann. Voða fínt stykki þó að básúnuparturinn gerir ansi miklar kröfur til mín. Hæsta nótan er tvístrikað f og sú lægsta er pedal e. Mætti semsagt á æfingu með því verki í dag. Tónleikarnir á fimmtudaginn kemur.
Á morgun, föstudag, er fyrsta hljómsveitaræfingin með annan hornkonsert Mozart. Ég hlakka svona lúmskt til. Í fyrsta skipti sem ég fæ að stjórna kammersveit.
Helgin fer svo í það að æfa mig eins og bastarður á básúnuna.
Á mánudag er önnur Mozart æfing. Þriðjudag tónleikar. Miðvikudag básúnupróf. Fimmtudag tónsmíðatónleikar og Beethoven 5 síðar um kvöldið. Á föstudag er svo Beethoven 5 aftur. Á laugardag eftir viku fer ég helst ekki úr rúminu ef ég fæ að ráða, sem ég fæ nú reyndar aldrei.
Í dag spilaði ég í gegnum hluta af prófinu mínu í Low Brass tímanum. Það var voða hollt og í heildina gekk bara voða vel. Eins og alltaf voru staðir sem klikkuðu og á suma staði þarf ég að líta aðeins betur á. Sérstaklega í Serocki, fyrsta kaflanum.
Reyndar er ég búinn að vera með smá hita í dag og höfuðverk í kjölfarið. Þess vegna fór ég nú bara heim eftir Low Brass tímann og lá í sófanum mestan part kvöldsins og krotaði eitthvað í Mozart raddskrána.
Ef fólk hefur áhuga á því að vita af hverju ég er að blogga svona seint þá verð ég að deila því með þeim sem vilja. Ástæðan er einfaldlega sú að ég fór í rúmið um miðnættið en eftir 3 og hálfan tíma andvaka þá datt mér ekkert skárra í hug en að svala bloggþörf minni.
Það er líka ansi heitt hérna. Ég þyrfti eiginlega að redda mér viftu. Að opna glugga gerir meira ógagn en gagn.
Ég veit ekki um ykkur en það er kominn mikill spenningur í mig fyrir EM í fótbolta. Að venju mun ég halda með Hollendingum en Spánverjar verða mér líka ofarlega í huga, en ég vil meina að þeir séu með hvað best mannaða liðið, allavega á pappírunum.
Ég þarf að henda jakkafötunum í þvott á morgun svo þau verði til fyrir þriðjudaginn. Held samt að ég muni stjórna í rauðu skyrtunni minni. Ef ég stjórna í jakkafötunum þá gæti ég eins bara hent þeim eftir tónleikana miðað við hvernig ég svitna þessa dagana.
Jæja, ég held ég ætli að detta í einn Futurama þátt og vonandi verður hann leiðinlegur svo ég sofni.
Lifið heil.
Áfram Holland.
Friday, June 6, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment