Þetta blogg mitt er eiginlega að verða vikulegur viðburður í staðinn fyrir daglegan viðburð. Ástæðan er einfaldlega sú að ég er með ótrúlega mikið að gera í skólanum, alla daga. Er í skólanum að jafnaði 10 tíma á dag. Kemst varla í að vinna að útsetningunum sem ég þarf þó að vinna að.
Á miðvikudaginn síðasta var árlegt skólapartý. Það var haldið á Melkweg, sem er risastór skemmtistaður við Leidseplein. Ekki furða að voðalega lítil fjárráð eru í skólanum þegar öllum peningnum er eytt í fremstu techno tónlistarmenn hollands til að spila fyrir dansi hjá útúrdrukknum listnemum frá öllum heimshornum.
Það kvöld byrjaði með upphitun hjá Grími uppúr klukkan 7. Við fengum okkur eitthvað að borða, hópur íslendinga, og drukkum að sjálfsögðu bjór og vín. Uppáhalds bjórinn minn eins og er Leffe Blonde, belgískur 6,6 prósenta bjór.
En já, á ballinu var aðaltakmark mitt að koma Barthel, bekkjarbróður mínum, á séns. Það tókst ekki. Ástæðan var einfaldlega sú að ég hafði í fullu fangi með að sjá um mín mál. Dansaði djarfann dans við franska óperusöngkonu sem endaði í bölvi þegar ég komst að því að hún ætti kærasta. Jæja, búinn að gleyma henni.
Í gærkvöldi átti Steini 25 ára afmæli og af því tilefni var haldið partý heima hjá Grími. Það voru eiginlega bara íslendingar fyrir utan Max Tómasarson og þrjár stelpur sem voru ansi góðar landkynningar fyrir Þýskaland. Eitthvað fannst mér vanta upp á fjölbreytnina þannig að ég hringdi í Önu píanósnillinginn minn sem ég kynntist fyrir 2 vikum í indverskri rytmafræði. Koma hennar veitti partýinu áður óþekktan ljóma og varð fólk almennt hástemmdara og uppteknara af íslenskum sérkennum sínum sem náði óútreiknanlegum klímax í því að ég og Grímur með hjálp Kristjáns og Steina höfðum djammsessíón með hljóðfærum okkar. Ég byrjaði á því að spila Vísur Vatnsenda-Rósu sem enduðu með dúet milli mín og Gríms þar sem við nauðguðum á kurteisislegan hátt Íslands Farsælda frón. Síðan tóku við vel ígrunduð sóló við góðar undirtektir.
Það kvöld endaði svo í morgunsárið með því að ég ákvað að hjóla heim til Diemen þrátt fyrir ítrekuð og velviljuð boð um krössun hjá Grími. En ég þarf á mínum nætursvefni að halda þótt hann muni ílengjast fram á miðjan dag.
Uppúr klukkan tvö í dag hafði Andreas svo samband og kom svo síðar í heimsókn. Við ákváðum snemma að eyða deginum ekki í neina vitleysu heldur að horfa á Star Trek og elda steikur með meðlæti. Við reyndar eyðilögðum eiginlega steikina. Eitthvað misreiknuðum við brotavilja ofnsins, kjötið var ætt en þó of þurrt. Því var þó bjargað af salatinu sem við mixuðum með extra fetaosti. Með deilingu á rauðvínsflösku og áðurnefndu star Trek glápi þá varð dagurinn æðislegur og jafnvel rómantískur á köflum og bölvaði maður í hljóði þeirri staðreynd að maður væri að eyða rauðvíni í einstakling af sama kyni. En það var nú stutt böl.
Það eru skemmtilegar fréttir að við það að hafa flutt inní minna herbergi þá hefur leigan mín lækkað um 150 evrur sem ég ætla að reyna að nota ekki sem afsökun fyrir aukna áfengisdrykkju, heldur kaupa frekar dýrara áfengi og njóta þess betur.
Nú er Andreas farinn og sambýlendurnir eru enn í Haag eftir því sem ég best veit þannig að ég ætla að nýta vinnufriðinn í smá vinnu.
Saturday, September 27, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hvernig væri að eyða peningunum í eitthvað annað en áfengi? Súkkulaði til dæmis væri strax ögn betra ;o)
Kvedja fra Englandi!
Post a Comment