Ég missti af básúnutíma vegna misskilnings, bankamisskilnings.
Ég hafði sótt um yfirdráttarheimild hjá Glitni og það var farið að óskum mínum. Svo í morgun þegar ég var á lestastöðinni að kaupa lestarmiða til Utrecht, með viðkomu í Amsterdam, þá var kortinu mínu bara synjað sísvona. Og engin innistæða á hollenska kortinu. Ég byrjaði að svitna laumulega og hafði mig svo heim á leið til að reyna að finna út úr því af hverju bankinn minn hefði brugðist mér svona illilega á ögurstundu.
Ég skrifa kurteist en örvæntingafullt tölvubréf til þjónustufulltrúa míns og spyr hvort að Hollendingar hafi fryst íslenskar yfirdráttarheimildir vegna svekkelsis útaf yfirtöku Marel á Stork. Orðaði það reyndar ekki alveg þannig en það skiptir ekki öllu máli.
Fulltrúinn svarar um hæl og segir að þetta eigi að vera þarna. Mér líður eins og heimskingja og fer á netbankann og sé að engin breyting er komin á tékkareikninginn minn.
Ég spyr þá eins og saklaust barn hvar blessuð yfirdráttarheimildin hafi lent.
Nú, á námsvildarreikningnum að sjálfsögðu var svarið.
Semsagt bankinn brást mér ekki heldur bara svona gleymdi að nefna eitt lítið smáatriði, sem kostaði mig básúnutíma.
En allavega nú er allt komið í lag, er búinn að millifæra yfir á tékkareikninginn minn og ætti að geta keypt lestarmiða og kannski eitthvað að borða líka.
Ég fór í gegnum gærdaginn á múslíkexi vegna peningaskorts.
En ég ákvað að dekra við sjálfan mig í kvöldmatnum og fékk mér niðursoðinn makríl í tómatsósu og drakk dagsgamalt kók með.
Nú er ég semsagt búinn að missa af básúnutímanum þannig að ég hef í raun ekkert betra að gera en bara leggjast uppí rúm með bók og bíða þess að það sé tímanlegt að fara til Utrecht.
A
Friday, October 31, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Svekkjandi - þarftu ekki traustari bankafulltrúa?
æ,æ, þvílíkt klúður en þú ættir að vera búinn að læra það að það borgaer sig að ganga ítarlega úr skugga um svona hluti áður en þú getur reiknað með að geta tekið út pening
Thad er nú gott ad thú gast fengid kók og makríl samt... Thad var einmitt valid lélegasta samsetning í heimi á yahoo.com
Post a Comment