Nótnasendingin skilaði sér í gær og ég er semsagt kominn með raddskrárnar af Skálholtsmessu og Beethoven tilbrigðum Jóns Leifs í hendurnar. Ég er að sjálfsögðu byrjaður að greina verkin og er ég sérstaklega hrifinn af Jóni Leifs. Aðeins auðveldar að þröngva honum inn í klassíska funktíónal hljómfræði en messunni hans pabba.
Í Wagner kúrsinum í dag byrjðum við að fara lauslega í Niflungahringinn. Mesta stórvirki sögunnar á sviði tónlistar og óperu, þó reyndar sé eitt verk sem tekur lengri tíma í flutningi eftir Stockhausen. Þetta er svo gígantískt verk að ekki er hægt að lýsa því í fáum orðum og ég er nú bara búin að fá lauslega útskýringu á því sem gerist í fyrstu óperunni, Das Rheingold, af fjórum. Kennarinn hélt hálftíma einræðu þar sem hann fór yfir söguþráð óperunnar. Það var reyndar mjög inspírarandi þar sem hann fór í mismunandi hlutverk og breytti raddbeitingunni eftir hentugleika.
Jæja, er að leka niður.
Góða nótt.
Tuesday, October 28, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Gott að heyra að þú skemmtir þér drengur!
haha fyrirsögnin á blogginu fyrir nedan er alveg yndisleg, mjög hressandi svona í kuldanum í Køben
Post a Comment