Ég vaknaði í morgun með hita, smassaði á Ivan og fór aftur að sofa. Vaknaði svo síðar og horfði á Star Trek, fann til hungurs og smurði mér rúgbrauð með hnetusmjöri og drakk vatn með. Meira Star Trek gláp.
Og nú er ég með blessaðan valkvíða fyrir kvöldmatinn. Ég á nefnilega ekki til neitt að borða og á engan pening á mer þannig að ég neyðist til þess að fara útí búð.
Lífið væri nú auðveldara ef ég væri með pening á mér. Þá myndi ég bara panta mér mat, annað hvort frá Dominos eða Grill World. En að fara útí búð og koma svo heim og panta pizzu er meira að segja aðeins of plebbalegt fyrir mig. En mig langar nú samt í dominos pizzu þannig að ég ætla nú samt að gera þetta, þrátt fyrir ósamþykki annars fólks. Stundum verður að taka ákvarðanir sem eru erfiðar og mæta andstöðu fólks í kringum mann.
Ég bara sé í hyllingum kvöld tileinkað pizzuáti og Star Trek glápi.
Sannleikurinn er að ég er orðinn þreyttur á að borða rúgbrauð með hnetusmjöri í hvert mál.
Lifi byltingin,
a
Friday, November 28, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Er ekkert SPENNANDI að gerast þarna í útlöndum?
ég ætla í "bucket" á KFC í kvöld, thad hefur verid draumur minn lengi ad ganga strikid med KFC fötu. USSS hvad ég hlakka til!!! datt í hug ad thú værir eini madurinn i heiminum sem hefdi áhuga á thessu, fyrir utan Thossa
Post a Comment