Saturday, March 21, 2009

Partý partý

Gærkvöldinu var að mestum hluta eytt í partý, ástæðan var afmæli Margret, hún varð 23 ára gömul í gær. Það var hin mesta skemmtun og mjög hressandi að hjóla heim 10 km leið í morgunsárið.

Deginum í dag var svo varið í leti, vaknaði ekki fyrr en að verða 3 í guðdómlegu veðri hérna í Diemen.

Vorið er svo sannarlega komið í Hollandi, búin að vera sól í tæpa viku og svona 12-16 stiga hiti. Fyrirtaks íslenskt sumarveður.

Á fimmtudaginn næstkomandi byrjar básúnufestival í Rotterdam. Nokkrar af helstu stjörnum básúnuheimsins verða þar. Ég ætla mér að kíkja á tvenna tónleika, á fimmtudags og föstudagskvöldinu.

Síðan fer að styttast í Súrínam, en ég fer 2. apríl. Ég á reyndar eftir að ná í vegabréfsárituna, geri það á mánudagsmorguninn.

Í gær spiluðum við smá try-out með poppbandi sem kemur með okkur til Súrínam. Eitthvað prógram hugsað fyrir skólakrakka. Svo sem falleg pæling en óttalega leiðinlegt að spila þetta útúrþunna popp.

Ansi mikið af því sem við munum spila þarna úti er útúrþynnt popp. Því miður.

Eitthvað er ég fámáll þessa stundina og held ég kveðji.

2 comments:

Anonymous said...

iss - þú márralveg vera fámáll, bara að þú bloggir endrum og eins.

Anonymous said...

þú MÁTT ....