Þetta eru svona gettu betur spurningar.
Ímyndaðu þér að þú sért staddur alein/n í afskekktum skógi og gengur fram á lík sem er búið að liggja þar ekki lengur en í 2 daga. Manneskjan var greinilega myrt á hrottafenginn hátt. Vegna mikillar rigningar daginn áður en þú mætir á svæðið þá eru engin fótspor á svæðinu önnur en þín. Myndir þú tilkynna líkfundinn?
Ímyndaðu þér að þú sitjir við veisluborð á gamlársdag ásamt fullt af fólki sem þú þekkir lítilega. Maki þinn er á svæðinu en situr á öðrum stað við borðið. Þegar líða tekur á matarhaldið sérðu að maki þinn er farinn að halla sér ískyggilega mikið uppað sessunaut sínum af hinu kyninu. Þú finnur fyrir afbrýðissemi en ert samt stolt/ur yfir því hvað maki þinn hefur mikið aðdráttarafl. Allt í einu lítur maki þinn í augu þín og roðnar og lítur snögglega undan. Þú verður hissa en ákveður að vekja ekki máls á þessu. Þegar heim er komið finnst þér tilvalið að spyrja nánar útí það sem gerðist en makinn segist vera orðin/n þreyttur og nennir ekki að tala lengur og vill fara að sofa.
Myndir þú leyfa honum það?
Ímyndaðu þér að þú sækir reglulega kirkju en smám saman kemstu að því að kirkjusókn þín sé ekki af trúarlegum ástæðum, heldur vegna þess að þú sért einmana.
Hvern myndirðu hringja í?
Ímyndaðu þér að þú sért að horfa á kvikmynd með vinum þínum. Þú hefur séð myndina áður.
Læturðu vini þína vita þegar eitthvað merkilegt er að fara að gerast?
Ímyndaðu þér að þú sért á sinfóníutónleikum. Þú situr við hliðina á gömlum manni sem dottar í sífellu. Allt í einu kemur sú tilfinning upp hjá þér að gamli maðurinn sé hættur að anda.
Myndirðu bíða eftir því að kaflinn kláraðist áður en þú hnipptir í manninn?
Ímyndaðu þér að það væri til tímavél og að þú gætir notað hana til þess að sjá sjálfan þig þegar þú værir yngri. Því miður þá virkar tímavélin bara aðra leiðina, þú kæmist ekki til baka.
Myndir þú samt vilja hitta sjálfan þig?
Ímyndaðu þér að þú gangir fram á peningaveski. Veskið er tómt fyrir utan útrunnið ökuskirteini.
Myndir þú reyna að hafa upp á eiganda veskisins?
Ímyndaðu þér að þú vinnir fyrir dagblað við prófarkalestur. Þú tekur eftir því að einn virtasti blaðamaður blaðsins er illa haldinn af þágufallssýki.
Myndir þú segja vinum þínum frá því?
Ímyndaðu þér að þér gæfist kostur til þess að verða önnur manneskja í einn dag.
Hver myndir þú verða?
Ímyndaðu þér að bankinn þinn byrjaði að bjóða uppá lán á hagstæðum vöxtum fyrir hverju sem er. Allir kunningjar þínir tala vel um þessi lán og hafa fjárfest í jeppum og hlutabréfum. Innst inni treystir þú þessu ekki en aftur á móti langar þig í nýjan bíl.
Hvort myndir þú kaupa þér Range Rover eða Lexus?
Ímyndaðu þér að þú sért sett/ur í þau spor að þurfa að svara fullt af skrýtnum, nærgætnum spurningum um þína einkahagi.
Myndir þú deila svörunum með öðrum?
Monday, March 30, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment