Thursday, April 23, 2009

Hljómsveitarprójekt

Þessa vikuna hefur verið hljómsveitarprójekt í skólanum mínum undir stjórn Ed Spanjaard. Á efnisskránni er meðal annars La Mer eftir Debussy og Píanókonsert í G eftir Ravel. Þess má geta að píanóleikarinn, masternemandi í skólanum, er bókstaflega fáránlegur. Hann spilar svo ógeðslega hratt að allir eru að fara af taugum, í þriðja þættinum sérstaklega. En annan þáttinn spilar hann svo fallega að maður fyrirgefur honum það auðveldlega að gera lífið mann svona erfitt. Reyndar er það enskt-horn leikarinn sem stelur senunni í öðrum kaflanum með fallegustu útgáfu af löngu sólóinu sem ég hef nokkurn tíman heyrt, og hef ég nú heyrt þennan konsert á tónleikum ansi oft, og spilað í honum áður. Hún gjörsamlega bræðir alla í hljómsveitinni með hverri nótu.

Þetta er reyndar ekki básúnuvænasta prógram sögunnar, eins og oft þá eyðir maður lunga dagsins í að bíða eftir að maður komi inn, en það er það lang erfiðasta við æfingarnar. Það er nefnilega mikill misskilningur að maður geti bara slakað á þegar maður er ekki að spila. Að halda fullri einbeitingu í langan tíma og koma svo með sína innkomu á hárréttum tíma tekur á. Ég er til að mynda miklu þreyttari eftir 3ja tíma hljómsveitaræfingu en 3ja tíma brassband æfingu, þar sem maður spilar stanslaust.

Að vera básúnuleikari í sinfóníuhljómsveit er dáldið líkt því að vera markmaður í Barcelona. Maður mun ekki sjá mikið af boltanum í leiknum, en þegar skot koma þá verður maður að vera fullkomlega tilbúinn.

En stjórnandinn er ótrúlega góður. Reynslan drýpur af hverri hreyfingu hans og hann er mjög laginn við að skynja hvenær athygli hljómsveitarinnar er ekki sem skyldi, og þá segir hann einhverja skemmtilega sögu, sumar hverjar ansi vandræðalegar um sjálfan sig. Hlutir sem sumir stjórnendur gera svo erfiða fyrir hljómsveitina er ekki að finna hjá honum og hann hefur ekki einu sinni orðið pirraður, sem er stórmerkilegt. En hann hættir ekki að æfa fyrr en hann er orðinn ánægður, en hann gerir það á þann hátt að maður verður eiginlega vonsvikinn þegar hann er orðinn ánægður, því að með hverjum frasa lærir maður eitthvað nýtt.

1 comment:

mamma og pabbi said...

Gleðilegt sumar!