Saturday, April 18, 2009

sól í Amsterdam

Það er svo sannarlega komið vor hérna. Búið að vera allt að 20 stiga hiti undanfarna daga. Dagurinn í dag fer í algjöra leti hjá mér. Enn er mikil þreyta í mér eftir Súrínam.

Í gær var fyrsta tutti æfingin í hljómsveitarverkefni skólans undir stjórn Ed Spaanjard. Á efnisskránni eru meistaraverk eftir Debussy og Ravel, La Mer og Píanókonsert í G meðal annarra.

Ég er mjög ánægður með stjórnandann, mjög jákvæður og það skiptir hann máli að spilararnir hafi gaman af því sem gerist á æfingum.

Í gærkvöld fór ég svo í heimsókn til Mörtu og við drukkum rauðvín og átum súkkulaði ásamt kærastanum hennar. Það var mjög gaman og ég kom heim rúmlega þrjú í morgun.

Eins og er þá er ég að lesa aðra bókina eftir Stieg Larsson og hef gaman að. Gjörsamlega ómögulegt að leggja bókina frá sér. Þannig á það líka að vera.

En þegar sólin er svona björt þá slokknar á heilanum mínum og ég get gert voðalega lítið annað en að glápa á sjónvarpið og sofa. Tókst meira að segja að sofna sitjandi útá svölum, sem varð til þess að húðin byrjaði að flagna aðeins meira af handleggjunum mínum.

Fyrirferðamestu fréttirnar þessa dagana varðar eigendur Pirate Bay síðunnar. Í gegnum síðuna er hægt að skiptast á fælum við aðra sem er tengdir við síðuna. Hver einasti unglingur þekkir þessa síðu eða svipaðar síður. Eigendur síðunnar voru semsagt dæmdir í fangelsi fyrir ólöglega meðferð á efni háðu höfundarrétti. Þessu svipar til Napsters málsins fræga fyrir nokkrum árum en nú er um að ræða alls konar fæla, kvikmyndir, sjónvarpsþættir, bækur.

Þetta er vissulega mikilvægur sigur fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem hafa lifibrauð sitt af sölu efnis og talið er að síður líkar Pirate Bay kosti afþreyingariðnaðinn allt að 600 miljón dollara ár hvert.

Allt snýst þetta um viðhorf, hví að borga fyrir eitthvað sem maður getur fengið frítt? En persónulega finnst mér þetta vera mjög sorgleg þróun.

Oft er sagt að þær bækur sem maður eigi segi eitthvað um persónu manns. Því er ég fullkomlega sammála, en nú er að koma fram kynslóð af fólki sem er nákvæmlega sama um svoleiðis hluti. Þegar ég lít í bókahilluna mína og sé safn af bókum, dvd diskum og geisladiskum þá sé ég part af sjálfum mér, og allir sem koma inní herbergið mitt sjá það sama. Ég hef fjárfest í þekkingu, afþreyingu, sálfræði og klámi. Allt segir þetta eitthvað um mig. Ef allt þetta efni væru fælar í tölvunni minni þá væri ekkert af þessu á yfirborðinu.

Það er nefnilega ekki það sama að niðurhala mynd af netinu og að kaupa dvd diskinn. Dvd diskur er eitthvað áþreifanlegt og þó að mörg ár séu frá því að diskurinn var keyptur þá er hann enn til.

Auðvitað væri þægilegra að hafa þessa 100 dvd diska alla inní tölvunni minni en hvað er gaman við það? Við eigum að vera stolt af því sem við gerum og það á að vera til sýnis. Kristinn maður niðurhalar ekki Biblíunni, hann kaupir hana, því bókin er partur af hans eigin sannfæringu. Rétt eins og Lord of the Rings eftir Tolkien hefur hjálpað mér að skilja heiminn sem við lifum í, og mér finnst mikilvægt að vinir mínir sjái það, án þess að þurfa að leita í tölvunni minni.

Þetta er viðhorf sem mér finnst vera mjög fallegt og það sem betra er að ágóðinn af kaupverðinu rennur til þess sem gerði vöruna, eða ættingja hans.

Á CNN núna áðan var viðtal við Oliver Stone vegna nýrrar myndar sem hann var að gera um Hugo Chaves, ef ég skildi rétt, ég kom dáldið seint inní viðtalið. Hann talaði um mikilvægi þess að fara í bíó og kallaði það félagslega athöfn sem mætti ekki hverfa. Nútímafólk eyðir nógu miklum tíma fyrir framan tölvuna þótt það eyði ekki frítíma sínum þar líka.

Að deila lífi sínu með öðrum er ómetanlegt.

3 comments:

hrodmari said...

svo má ekki gleyma höfundunum, það eru fyrst og fremst þeir sem tapa

Mamma said...

Ja hérna - athyglisverðar fjárfestingar sonur sæll!

Anonymous said...

While I surf blog , i found a all new trick in http://pic-memory.blogspot.com/Vistor can comment and EMBED VIDEO YOUTUBE , IMAGE. Showed Immediately!
EX : View Source.
http://pic-memory.blogspot.com/2009/02/photos-women-latin-asian-pictu...(add photos and videos to Blogspot comments).
Written it very smart!
I wonder how they do it ? Anyone know about this , please tell me :D
(sr for my bad english ^_^)

email: ya76oo@ya76oo.com
thanks.