Icelandic Music Days er að taka á sig endanlega mynd smám saman, 5 tónleikar í allt.
Svona lítur prógrammið út eins og er,
11.02.10 kl. 11:45 Bernard Haitinkzaal Kammertónleikar með íslenskri tónlist fluttri af íslensku tónlistarfólki
12:02.10 kl. 11:45 Blue Note Dægurperlur miðbiks síðustu aldar, m.a. lög Jóns Múla og Jónasar Árnasonar, í nýjum og ferskum útsetningum
12:02.10 kl. 20:15 Bernard Haitinkzaal Galatónleikar, gamalt og gott, nýtt og ferskt, íslensk tónlist í sinni bestu mynd
13.02.10 kl. 14:30 Sweelinkzaal Söngtónleikar, Öll sönglög Jórunnar Viðars og meira til.
14:02.10 kl. 22:00 Badcuyp Jazztónleikar, K-Tríó og gestir
Tveir frumflutningar verða á hátíðinni, dúett fyrir básúnu og klarinett eftir Inga Garðar og verk fyrir kammersveit eftir Þráinn Hjálmarsson.
Eins og síðast þá mun slatti af fólki koma sérstaklega til Amsterdam vegna hátíðarinnar.
Er þessa dagana að smíða styrkjaumsóknir svo að fólk muni ekki koma út úr þessu í bullandi mínus. Heppilegt er að það er ansi ódýrt að ferðast innan evrópu.
En gott í bili,
Wednesday, November 4, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Þetta er risavaxið!
þetta lýtur vel út!
Post a Comment