Tuesday, November 24, 2009

Raki

Jæja, gat ekki sofið lengur. En ótrúlega er loftið rakt í þessu bæli mínu, og það er frekar kalt líka. Ótrúleg blanda og eitthvað sem ég á mjög erfitt með að venjast.

Í gærmorgun var próf í 20. aldar greiningu og tónheyrn, eins og ævinlega er tónheyrnarparturinn stórskrítinn þar sem sumir þættirnir eru frammúrskarandi á meðan aðrir eru fyrir neðan meðalmennsku. Stórskemmtilegt alveg að sjá undrunarsvipinn á kennurunum :)

En annars ákvað ég bara að ég væri kominn með nóg af flensunni og tók daginn snemma í gærmorgun, ja snemma í þeirri merkingu að ég sleppti því að sofa enda var svefnmunstrið orðið ansi ókristilegt. Hlustaði á sinfóníu númer 2 eftir Gustav Mahler eldsnemma og það var hreint út sagt æðislegt, langt síðan ég hef tekið upp Mahler til að hlusta.

En reyndar lenti ég í smá sjokki í gærmorgun þegar ég reyndi að spila. Munnsetningin hefur tekið einhverjum breytingum og ég þurfti eiginlega að læra uppá nýtt hvernig ég ætti að spila, ekki beint þægileg tilhugsun. Þetta var mun verra en gerist venjulega þegar maður hefur ekki getað spilað í nokkurn tíma.

En ætla að fá mér morgunmat.

No comments: