Þetta var góður dagur í dag.
Kominn á fætur fyrir hádegi og náði að æfa mig í rúmar 3 klst áður en ég tók lestina til Rotterdam.
Tilgangurinn með Rotterdam ferðinni var að fara á útskriftartónleika Antti en ég kynntist honum þegar ég heimsótti Rotterdam í janúar í fyrra. Ég náði í skottið á tónleikum hjá öðrum básúnunemenda á undan og var það alveg æðislegt. Mikið efni í virtúós þar á ferðinni.
Þema tónleika Antti var tími eða tímaleysi og flutti hann meðal annars hið heimsfræga verk 4´33´´ eftir John Cage í útsetningu fyrir básúnu eftir Martin Schippers. Músíklega séð voru þessir tónleikar hreint afbragð og mjög fagmannlega að verki staðið. Smá hnökrar í byrjun vegna stress en það lagaðist þegar á leið. Mjög gefandi prógram og er hann Antti mikill músíkant.
Hann fer til síns heima í Finnlandi í næstu viku en við ætlum að hittast einu sinni áður en það gerist.
Í lestinni heim til Amsterdam kláraði ég greiningu mína á Schubert kaflanum sem ég á að halda fyrirlestur um á morgun. Í þessum kafla kemur fram Napólíblæti í öllu sínu veldi sem eykur á mikilvægi þessa verks í sinfónískum tónbókmenntum.
Þegar heim var komið æfði ég mig svo í tæpan klukkutíma. Algjör draumur að vera kominn með æfingademparann aftur. Og sturta rétt áðan og þá eru nær allar gjörðir mínar í dag upptaldar.
Og þá er eiginlega ekkert eftir að gera en að kveðja,
Howdy
Thursday, June 21, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Gott að heyra að líf tónlistarnemans gengur sinn vanagang; æfingar, tónleikar, sturta!
Napólíblæti?
Post a Comment