Friday, June 1, 2007

Til baka í Amsterdam

Pabbi kom til mín í gær og verður hér fram á þriðjudag. Fátt markvert er búið að gerast síðan ég kom hingað á þriðjudag. En í gær varð breyting á.

Samnemendur mínir André og Rolf munu taka Bachelor próf í bassabásúnuleik í næstu viku. Í gær var rennsli. Þeir skiptust á að spila og báðir spiluðu 5 verk. Rolf með standarda úr bókmenntunum en André á einkaflippi sem tókst bara nokkuð vel.

Í gærkvöld fórum við feðgarnir á ítalskan stað hér í nágrenninu og tókum okkur góðan tíma í að borða rétti af pasta-ættinni. Að málsverðinum loknum lá leiðin í bíó þar sem planið var að sjá Zodiak. Okkur til einskærra vonbrigða var uppselt á myndina. En úrþví við vorum á staðnum var ekki hvikað frá því að fara á einhverja mynd þannig að við keyptum miða á Blades of Glory.

Blades of Glory er með fyndnari myndum sem ég hef séð uppá síðkastið. Við lágum í óklístruðu gólfinu í krampakenndum hláturköstum í tíma og ótíma. Maður mun horfa öðruvísi auga á listskauta í framtíðinni.

Ég hef grun um faðir minn ætli sér að draga mig með sér í einhverskonar bæjarráp.

En það kemur allt í ljós

1 comment:

Anonymous said...

Þið dressið ykkur kannski upp?