Sunday, June 3, 2007

Labb

Dagurinn í dag einkenndist af labbi. Við feðgarnir vöknuðum eitthvað um klukkan 11. Fengum okkur morgunmat og lásum dáldið, í sitt hvorri bókinni að sjálfsögðu. Að lestrarstund lokinni lá leiðin í óperuna til að athuga með miðaframboð fyrir sýningu kvöldsins. Framboð var ekki nógu heillandi þannig að við keyptum miða í bíó í staðinn, Zodiak varð fyrir valinu. Þá var rölt heim á leið með viðkomu í myndalegri fatabúð á mörgum hæðum. Klukkustundaráp í risamannvirkinu skilaði mér einum buxum og einum stuttermabol. Ef talað er um tíma og árangur þá eru þetta ekki glæsilegar tölur.

Á Bloemgracht var svo drukkið kók og þambaður bjór og spjallað við kvenkyns hluta íbúanna í íbúðinni áður en leið lá á flottan ítalskan veitingastað. Pasta og hálfmáni með kók og rauðvíni (2 glös).

Þegar hér er komið við sögu þá var óþreyjan eftir bíóinu orðin mikil. Og ekki urðum við fyrir vonbrigðum. Myndin eftir höfund Seven og mögnuð í alla staði. Flott handrit, leikarar, tónlistin fín. Fjölbreytt morð juku dýpt myndarinnar og enginn var svikinn.

Á morgun skilja leiðir. Ég í skólann en pabbi til Utrecht í nostalgíu ferð. Ég verð fyrir vonbrigðum ef kvöldmatur morgundagsins verður eitthvað annað en steik. En það segi ég pabba að sjálfsögðu ekki. Hann er búinn að hóta því að gerast grænmetisæta um leið og bróðir minn flytur að heiman. Ég á nú eftir að sjá það gerast. Ein grænmetisæta í stórfjölskyldu er nóg.

Og það er komið nóg af fleiru.

1 comment:

Anonymous said...

Og var það STEIK ...?