Ætli ég verði ekki að byrja á því að afsaka augljósan skort á bloggfærslum undanfarna daga. Ég einhvern veginn hef ekki haft neina þörf til þess að skrifa hugsanir mínar niður.
Mamma og pabbi voru í heimsókn hjá mér og eru tiltölulega nýfarin, fóru á sunnudagskvöldið. Það var voða fínt að fá þau í heimsókn þó að það hafi þýtt að ég þurfti að sofa í stofunni, en sófinn þar er reyndar bara ansi þægilegur. Legg mig yfirleitt í honum ef ég þarf á því að halda á daginn.
Var reyndar rétt í þessu að stíga upp úr sófablundi. Er hálfveikur í dag, með smá hita, hósta og kvef. En það varir nú vonandi ekki lengi yfir. Reyndar er smá flensa að ganga yfir í Amsterdam þessa dagana, sumarflensa einhver. Ekki nenni ég nú að standa í því.
Þessa dagana er ég að spila í uppfærslu skólans míns á óperunni Don Giovani eftir Mozart. Það er alveg fáránlega lítið að gera og til vitnisburðar um það þá byrjaði generalprufa í gær klukkan 19:00, ég og Johan tókum lestina frá Amsterdam klukkan 20:11 og vorum komnir í húsið klukkan 21:10 og í gryfjuna 21:15 og þurftum svo að bíða í 15 mínútur eftir fyrstu nótunni. Samtals vorum við innan við klukkutíma á svæðinu og spiluðum samtals innan við 10 mínútur.
Það er nú hálf súrrealískt að þurfa að fara alla leið til Haag til þess að spila í 10 mínútur. Sérstaklega þar sem ég var að komast að því að þetta er samstarfsverkefni milli Konsvervatoríanna í Haag og Amsterdam, og básúnubekkurinn í Haag er stærri en sá í Amsterdam þó að gæðin séu kannski ekki alveg þau sömu. En það þarf nú enga afbragðsspilara til þess að spila þessar fáu nótur.
Ég ætla að rölta útí búð og kaupa eitthvað matarkyns en fyrst ætla ég að vaska upp.
Jó
Wednesday, June 25, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Vó - er það þetta sem bíður hljóðfæraleikara?
Kveðja úr skóginum :o)
Post a Comment