Thursday, June 26, 2008

Þjóðverjar í úrslit

Tyrkneska landsliðið sem koms mjög óverðskuldað í undanúrslit EM í knattspyrnu féllu út mjög óverðskuldað gegn lélegum Þjóðverjum, 3-2. Tyrkir áttu svo sannarlega ekki skilið að tapa þeim leik en það er samt smá réttlæti í spilunum því svo sannarlega áttu þeir ekki skilið að vinna Króatana í 8-liða úrslitunum.

Maarten og Grímur komu til mín til þess að horfa á leikinn. Við pöntuðum pizzur frá Dominos og héldum alvöru karlakvöld. Það var bara mjög skemmtilegt. Eins og venjulega þegar fólk kemur að heimsækja mig þá varð Maarten dáldið orðlaus yfir aðstöðunni sem ég er með hérna. Stórt herbergi og stór stofa, mjög vel útlátið fyrir námsmenn. Enda er ég hæstánægður með húsakostinn.

Mér heyrist Marta vera að reyna að draga mig með sér í einhverskonar spænskt Aerobik með dansívafi sem hún er með inná tölvunni sinni. Örugglega stórskemmtilegt en hugsanlega dáldið skemmandi fyrir egóið mitt að sýna takmarkaða danshæfileika mína.

Ég er því miður enn með eitthvað í hálsinum og röddin mín er eftir því, áttund neðar.

Stórleikur undanúrslitanna er í kvöld, Spánn-Rússland. Rússar hafa heldur betur komið á óvart það sem af er keppninni og sérstaklega Arshavin sem er búinn að vera yfirburðarmaður í keppninnni hingað til. Hvernig hann pakkaði saman Hollendingunum verður lengi í minnum haft. Því miður er óperusýning í kvöld sem er náttúrulega skipulagsslys en vegna skorts á stöðum í óperunni fyrir básúnur þá mun ég geta horft á mestan part leiksins, ef hann fer ekki í framlengingu.

Ég ætla að fá mér eitthvað að borða núna og leggjast svo í sófann og slaka á til að reyna að ná þessum veikindum úr mér.

3 comments:

Anonymous said...

Bróðir þinn hefur veðjað stórfé á sigur Þjóðverja í keppninni .... Er hann á villigötum?

Anonymous said...

Eins og segir í ljóðinu: Deutschland, Deutschland uber alles. Það er bara dagsatt. Money in the bank hvað mig varðar

Anonymous said...

En meiri ástæða til þess að halda með Spánverjum, kenna yngri bróður mínum smá lexíu.