Sunday, June 8, 2008

Maestro Ari

Þessa dagana er ég tvöfaldur í roðinu bókstaflega. Á þriðjudagskvöldið stjórna ég hornkonsert á útskriftartónleikum og á miðvikudag uppúr hádegi er básúnuprófið mitt.

Fyrsta æfingin með hljómsveitinni fyrir hornkonsertinn var síðastliðinn fimmtudag og virtist bara vera almenn ánægja með störf mín þannig að ég er sáttur. Auðvitað eru alltaf einhverjir sem vilja frekar vera einhverstaðar annars staðar en maður reynir að útiloka þær raddir í höfðinu á manni.

Það var reyndar haft á orði hvað ég væri með skýrt slag, þannig að eitthvað hef ég greinilega lært hjá honum Gunnsteini. Það virðist vera vandamál meðal stjórnendanemanda í skólanum hérna í Amsterdam hvað þeir eru með fljótandi slag. Ég er greinilega líka búinn að fylgjast aðeins of mikið með Lindberg að stjórna hvað það varðar ;)

Það er voða auðvelt að gleyma sér í stjórnendapælingum og skilja básúnuna út undan. Ég reyndar skildi hljóðfærið út undan á föstudag og svo aftur á laugardag. Á föstudaginn kom ég því bara ekki við vegna anna en í gær ákvað ég bara að vera heima og horfa á fótbolta. Það var reyndar mjög þarft.

Ég fann það svo í dag þegar ég tók hljóðfærið upp aftur hvað ég þurfti mikið á þessum frídegi að halda.

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að Evrópumótið í fótbolta er byrjað. Fyrstu úrslit eru eftir bókinni og af þeim átta liðum sem nú þegar hafa keppt þá líta Portúgalir og Þjóðverjar best út. Á morgun eru svo svakalegir leikir, sérstaklega þegar maður er búsettur í Hollandi. Fyrri leikurinn er Frakkland-Rúmenía en sá seinni er stórleikur Hollands og Ítalíu.

Það er allt að verða brjálað í Hollandi fyrir leikinn, þannig á það líka að vera. Ekkert jafn sorglegt og þegar mikið liggur undir og fólk hafi ekki áhuga á því. Hér er almennilegur áhugi á fótbolta og er það vel.

Nú þarf ég aðeins að krota í raddskrána fyrir æfinguna í fyrramálið.

1 comment:

Anonymous said...

Ja hérna. Menn eru önnum kafnir. - Áfram Holland!