Tuesday, July 1, 2008

Je minn eini

Í dag sá ég annan leik með Federer, þar sem hann keppti á móti Lleyton Hewitt. Þvílíkur masterklass af hendi Federer. Kláraði leikinn í 3 settum. Hann fer fljótt að verða minn uppáhalds íþróttamaður. Þvílíkt vald sem hann hefur á íþróttinni. Hewitt fékk í allt 9 tækifæri til þess að brjóta hann en alltaf þegar á þurfti að halda þá svaraði Federer með annaðhvort frábæru rallíi eða ás. Þvílíkur guð.

Ég fæ álíka tilfinningu þegar ég sé hann eins og ég fékk þegar Ronaldinho var uppá sitt allra besta. Maður getur ekki annað en dáðst að því sem maður sér, þó að allt takist kannski ekki.

Þulirnir voru líka alveg æðislegir. BBC er náttúrulega besta sjónvarp í heiminum, þvílík fagmennska. Rétt eins og á EM þá var allt pottþétt, þulirnir vel máli farnir og vita allt um það sem þeir tala um.

Um daginn var líka þáttur á BBC um íþróttafréttamennsku, og þá sérstaklega um þulina. Það sem kom mér á óvart, en vissi þó allan tímann, var að það er rosalega skýr skipting á milli þulanna. Þeir eru meira og minna alltaf tveir saman, annar sér um að lýsa því sem gerist á meðan hinn er hreinn og klár álitsgjafi og talar varla nema á hann sé yrt. Ekkert verið að grípa frammí eins og því miður gerist allt of oft á Íslandi þó blessunalega hefur lýsing á íþróttaviðburðum batnað til muna. Enda fá þeir meiri þjálfun þar sem fleiri leikir eru sýndir í sjónvarpi en nokkru sinni fyrr.

En svo ég haldi áfram að tala um EM og BBC þá voru BBC ef ég man rétt með 12 starfsmenn sem voru fyrir framan myndavélarnar á mismunandi tímum á meðan mótinu stóð, fyrir utan álíka fjölda sem sá um útvarpslýsingar en á BBC er sá háttur hafður á að það eru ekki þeir sömu sem lýsa útvarps og sjónvarpsútsendingum. Því fékk ég að kynnast all rækilega í leik Þjóðverja og Tyrklands en þá rofnaði útsendingin í sjónvarpinu en þá voru þeir ekki lengi að svissa yfir á útvarpslýsinguna og maður fékk enn að vita hvað var að gerast í leiknum. Og rosalega voru þeir skýrir.

Undanfarna daga hef ég haft þörf til að horfa aftur á suma Star Trek þætti. Bara til þess að rifja upp þessa fallegu heimspeki. Þetta er eitt af sköpunarverkum mannkynsins sem gerir mann að betri manneskju. Star Trek hefur á sér vissan nördastimpil af einhverjum undarlegum ástæðum en það á alls ekki að letja fólk til þess að kynna sér þættina og þessa fallegu framtíðarsýn.

Ég verð samt að játa að ég nær engri tengingu við nýjustu seríuna frá Star Trek, The Enterprice. Mér finnst hún bara alltof illa leikin til þess að geta tekið hana alvarlega. En einhvern tíman þegar ég hef nógan tíma þá á ég eflaust eftir að gefa henni annan séns.

Það er merkilegt með sum tónverk, eins og til dæmis Beethoven 5, hvað þau eru alltaf fersk. Ég hef spilað þessa sinfóníu með 3 mismunandi hljómsveitum og í allt á 7 tónleikum og alltaf finnst mér ótrúlega gaman. Það er einhver frumkraftur í verkinu sem oft áhugamannasveitir ná betri tökum á en atvinnumenn sem því miður hugsa stundum aðeins of oft um réttar nótur heldur en rétta tilfinningu.

Nú ætla ég ekki enn og aftur að níðast á þessari þreytandi hugsun um að allt verði að vera svo fullkomið í tónlist. En það er því miður satt, allt of margir eru haldnir þeim ranghugmyndum að þó að eitthvað sé falskt þá sé það slæmt. Hvað um upptökur Maurice André? Þær eru rammfalskar en samt sem áður eitt það músíkalskasta sem maður kemst í.

Og eitt í viðbót, fólk almennt tekur ekki eftir því hvort eitthvað sé slæmt fyrr en því er bent á það. Ekki taka ánægjuna frá fólki bara af því að viðkomandi flutningur hafi ekki verið ykkur að skapi.

1 comment:

Anonymous said...

http://www.youtube.com/watch?v=XH_BoxsQ7MY&feature=related

líklega fyndnasta vídjó sem ég hef séd!!!