Fyrsti dagurinn í skólanum var mjög góður. Ég vaknaði reyndar klukkan 5 í morgun og tók mér góðan tíma til þess að borða morgunmat og gera morgunleikfimi, var svo mættur í skólann klukkan 8 og náði að æfa mig í 2 tíma áður en ég þurfti að fara á æfingu. Ég er að spila á lokaprófi tónsmíðanemanda í skólanum, verk fyrir fanfare band sem er nokkurs konar brassband með saxafónum að auki.
Æfingin var í 1 og hálfan tíma þó að hálftími hefði verið nóg.
Ég fékk mér svo pasta á vapiano í hádeginu sem var reyndar hálf mishepnað, gert í aðeins of miklum flýti af einhverri stelpuskjátu.
Klukkan hálf 2 til þrjú var svo önnur æfing fyrir sömu tónleika, æfingin kláraðist reyndar aðeins fyrr þannig að ég hafðí tíma til þess að taka smá úthaldsæfingar á alt básúnuna áður en ég átti að mæta í píanótíma klukkan hálf fjögur.
Píanótíminn var svo bara fínn, ég byrjaði á því að spila Sarabande úr Franskri Svítu númer 2 í c-moll. Peter, kennarinn, sagði bara bravó og náði svo í Lizt bók af bókasafninu og við spiluðum fjórhent það sem eftir lifði tímans.
Ég hafði þá hálftíma til þess að slaka á áður en ég mætti í tíma til Ivan. Ivan tók eftir því hvað ég var eitthvað orkuríkur og hafði orð á því og varð orðlaus þegar ég sýndi honum mynd af Chrissie, ég held barasta að ég hafi hækkað í áliti hjá honum.
Tíminn gekk svo bara mjög vel, spilaði yfir mest allt sem ég á að spila á prófinu næstu viku. Auðvitað einhver smáatriði sem hann vildi að ég lagaði en heildarsvipurinn var mjög góður og jákvæður.
Ég var samt algjörlega búinn á því eftir tímann enda spilaði ég á laskey skriðdrekann en það munnstykki er eiginlega aðeins of stórt.
En ég hafði enga tíma fyrir þreytu því að við tók 2ja tíma básúnutríó æfing, ég á sem sagt að spila básúnutríó með Barthel og Lode og ætlum við að spila verk eftir Christian Lindberg, sem er að sjálfsögðu fáránlega erfitt, sérstaklega fyrir mig.
Ég tók svo bara lestina heim með smá viðkomu í Albert Heijn svo ég ætti smá í kvöldmat og í morgunmat á morgun. Ég var reyndar svo þreyttur eftir daginn að ég dottaði í lestini og missti af Diemen stoppinu, fór þar af leiðandi út á næsta stoppi og var heppinn að þurfa ekki að bíða lengi eftir lestinni sem færi á mínar heimaslóðir.
Svo bara henti ég saté kjúklingnum í örbylgjuofninn og kláraði matinn fyrir ca. 20 mínútum.
Nú fer ég bara að glápa á star trek nema að Chrissie láti sjá sig á msn eða skype og vonast til að sofna bara um klukkan 11 og vakna svo 6 í fyrramálið.
Wednesday, January 7, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
já,þetta er svo sannarlega góður dagur hjá þér Ari minn, þú verður að halda áfram að vera svona duglegur strákur :)
love
Chrissie
Þetta er ekkert smá prógram drengur. - Gaman gaman!
Post a Comment