Tuesday, March 10, 2009

Enn og aftur í Amsterdam

Er tiltölulega nýlentur aftur í Amsterdam eftir 9 daga dvöl á heimalandinu. Það var ótrúlega gaman á Íslandi eins og venjulega þrátt fyrir að ég hafi nú verið frekar upptekinn, upptökur og svo tvennir tónleikar Ungfóníu.

Best var að geta eytt tíma með Chrissie en það var mjög erfitt að kveðja hana í morgun. En svona er lífið víst.

Ég var svona á milli svefns og vöku í flugvélinni og er hálfþreyttur eftir flugið þannig að ég ætla að leggja mig smá. Svo tek ég smá æfingatörn og kíki svo á Liverpool-Real Madrid í kvöld.

Á morgun hef ég ekkert að gera nema að taka eitt stykki spilapróf og jú, eftir það verð ég að greina eina sónötu eftir Muffat. Eftir stífar greiningatarnir fyrir jól þá nenni ég eiginlega ekki að vera mjög metnaðarfullur í þessu verkefni og ætla bara að gera það sem ég þarf að gera. Ekki reyna að sprengja einkunnaskalann.

Nú vil ég dáldið bara einbeita mér að hljóðfærinu fram á sumar og er eiginlega kominn tími til.

en jæja, smá Star Trek til þess að róa taugarnar og svo smá legg.

1 comment:

Anonymous said...

Þú þarft að kynna Star Trek fyrir geðlæknum. Greinilega óbrigðult lyf við leiða og þreytu og spennu og svefnleysi.