Wednesday, May 6, 2009

Barca

Úff, þvílíkt spennufall. Ég var búinn að gefa upp alla von en þá var Iniesta réttur maður á réttum stað og skoraði.

Annars hefur svo sem lítið markvert gerst í mínu lífi, eða þá að ég hafi gleymt einhverju. Reyndar var drottningardagurinn síðastliðinn fimmtudag og það var mergjað stuð. Þeir sem eru facebook vinir mínir ættu að geta séð að ég er taggaður í að minnsta kosti 2 vídjóum sem gefa ansi góða mynd af stemningunni.

Harmleikurinn í Apeldoorn skyggði þó á veisluhöldin, en ég frétti ekki af tilræðinu fyrr en seint um kvöldið.

Nú fer að byrja ansi brjálað tímabil hjá mér en á næstunni þarf ég að spila Mozart Requiem, Beethoven 9, undirbúa píanópróf og básúnupróf, spila í lokaverkefni hjá saxófónleikara eitthvað brjálað verk, stjórna lokaprófi Kenneths og spila í því líka. Þetta verður ótrúlega gaman en ekki mun verða tími fyrir mikið annað.

Fokk, ég sá moskítóflugu rétt í þessu í herberginu mínu. Það tímabil er greinilega byrjað, fokk. Nú harmar maður það á hverri nóttu að vera ekki á Íslandi og laus við þessar blóðsugur. En jæja, bara 3 mánuðir þangað til ég kem til föðurlandsins.

Í gærkvöldi þá kláraði ég að skrifa skýrslu um íslenska tónlistardaginn sem ég hélt í febrúar. Það varð mjög heimspekileg skýrsla og væntanlega allt annað en kennararnir vildu en mér er svo sem sama. Ef ég er beðinn um að skrifa eitthvað um eitthvað þá skrifa ég bara það sem ég þarf að skrifa, ekki endilega það sem aðrir vilja að ég skrifi.

Ég á eitthvað erfitt með að einbeita mér að skrifunum, vitandi af moskítóflugunni sem er í einhverjum djöfullegum leiðangri. Ég reyndar á heila túpu af ANTI INSECTGEL sem ég held ég beri á mig áður en ég fer að sofa. Þó að reyndar angra bitin mig ekki, en sá leiði ávani flugnaskammanna að fljúga inní eyrað á mér á nóttunni angrar mig. Ég vakna alltaf við það, og ég hata að vakna. Ég reyndar hata að fara að sofa líka, en það er bara gaman.

Dagurinn í dag var reyndar ansi góður hvað það varðaði. Ég fór á fætur rétt um hádegið og þar sem ég var með básúnuna heima þá bara tók ég smá upphitun áður en ég fékk mér morgunmat. Ég tók síðan 3 hálftíma skorpur með hálftíma hléi inná milli og fór yfir helstu grundvallar atriðin í básúnuleik. Korter í 6 var svo undirleikstími og gekk hann eins og í sögu, spilaði Wagenseil á alt básúnuna. Eftir þann tíma æfði ég mig svo í klukkutíma á píanóið og endaði með hálftíma á tenorinn. Eiginlega fullkominn dagur, spilaði akkúrat passlega mikið á öll hljóðfærin sem ég þarf víst að spila á þessa dagana. Ég finn líka svo mikinn mun þegar ég spila í styttri skorpum, stilli niðurteljarann bara á 30 mínútur og spila svo æfingar og þegar klukkan hringir þá legg ég hljóðfærið frá mér, horfi svo á sjónvarp eða vaska upp eða kíki á netið þangað til 30 mínútur eru liðnar og tek aðra skorpu. En þetta getur maður því miður ekki alltaf leyft sér. En að vera með ferskar varir og ferskan huga er ómetanlegt.

En jæja, nú ætla ég að slíta þessu stefnulausa bloggi mínu.

1 comment:

Helga said...

Gott að heyra í þér hér fyrst maður hefur ekki aðgang að Facebook vináttu þinni ...