Nú er skólinn nær búinn þennan veturinn. Aðeins einn básúnutími eftir, þann 26. júní. 21. júní eru svo Low Brass tónleikar í Vondelpark, ansi stórum almenningsgarði í Amsterdam. Að því loknu mun ég svo byrja á fullu að tölvusetja fyrir pabba minn og undirbúa þáttöku mína í alþjóðlegri básúnukeppni á vegum Lion klúbbsins.
Þessa dagana er eitthvað tómarúm sem svífur yfir síkjum Amsterdam. Maður er í skólanum en samt ekki en maður hefur af þeim sökum mikinn tíma til að æfa sig og skemmta sér. Og það verður eiginlega mikilvægara og mikilvægara eftir því sem ég eldist og þroskast, eða þroskast ekki. Að leyfa sér að gleyma stund og stað í einhvern tíma, með hjálp áfengis eða ekki, og koma svo fullur orku aftur að vandamálum hversdagsleikans.
Ég held ég muni eyða þessum gráa sunnudegi að mestu leyti í bókalestur. Ég hef ætlað mér að lesa bæði bindin af Don Kíkóta á þessu sumri og ég þarf aðeins að halda á spöðunum þar sem þetta eru tvær þykkar bækur, en ég mun hafa tíma.
Það er viss þreyta í mér eftir gærkvöldið þannig að því miður verður blogg mitt ekki lengra að þessu sinni en ég ætla mér að taka upp dagleg skrif frá og með deginum í dag.
Ari
Sunday, June 14, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment