Monday, June 15, 2009

Viðsnúningur

Jæja, þar kom að því að mér tókst að vakna á siðmenntuðum tíma. Reyndar þýddi það að ég náði einungis þriggja tíma svefn.

En já, ég tók semsagt daginn snemma og fór niður í skóla og æfði mig í allan dag. Með hléum að sjálfsögðu, en náði 10 hálftímum. Er algjörlega búinn á sál og líkama en voða stoltur af sjálfum mér ;)

Á sunnudaginn næstkomandi verða tónleikar hjá Low Brass grúppunni. Meðal verka er Salute to a Sausage Society eftir Christian Lindberg, básúnutríó þar sem ég spila fyrsta partinn. Segjum bara að maður þarf að hafa tvöföldu tunguna í lagi. Þetta verður held ég orðið fínt á sunnudaginn, hef enn tíma til að fínpússa þessi fáránlegu sextándupartahlaup.

Lifið heil,

Ari

2 comments:

Anonymous said...

Góður!!

Helga

Anonymous said...

Hmmmmmmmmm - Átti ekki að blogga daglega?

Helga