Saturday, June 20, 2009

Salute to Sausage Society

Ekki er hægt að lýsa síðustu dögum á annan hátt en stórskemmtilegum. Á miðvikudaginn var að sjálfsögðu haldið uppá 17. júní, við hittumst nokkrir Íslendingar heima hjá Hrafnhildi og héldum íslenskt partý, ég bauð Barthel, bekkjarbróður mínum í herlegheitin og hann naut sín. Oft hef ég heyrt að íslensku partýin séu þau bestu í boði innan fallinna borgarveggja Amsterdam.

Í gær, föstudag, hélt Barbara svo kveðjupartý, hún er reyndar ekkert að fara en hún þarf að yfirgefa íbúð bróður síns. Mjög falleg íbúð á Rivierunni, þegar maður gengur um götur þess hverfis þá er eins og maður sé bara alls ekki í amsterdam, hinn fullkomni staður til að búa, allavega í Amsterdam, að mínu mati. Partýið var stórskemmtilegt, mikið af skemmtilegu fólki sem kom frá mismunandi heimshornum. Það kom mér líka skemmtilega á óvart hve úthald veislugestanna var gott, ég kom heim rúmlega hálf sjö á laugardagsmorgun, ekki oft sem maður nær því hér.

Deginum í dag var af skiljanlegum ástæðum eytt í þynnku og í tilefni dagsins ákvað ég að gera alvarlega tiltekt á herbergi mínu, það var reyndar merkilega róandi þar sem ég réðst með uppþvottabursta á alla hugsanlega staði.

Á morgun verða svo hádegistónleikar með Low Brass bekknum í Vondelpark, ég bara vona að það verði sæmilega gott veður. Veðrið í Amsterdam í júní hefur valdið mér vonbrigðum, ansi sjaldan verið stuttbuxnaveður og aðeins of oft grár himinn. En við munum að sjálfsögðu bara hafa gaman af hlutunum, ekkert annað hægt.

Svo styttist óðum í Wimbledon og nú er tímasetningin mun betri en í fyrra þar sem ekki þarf ég að spila í einhverri óperu og mun geta beitt mér af mikilli alvöru í sjónvarpsglápi. Því miður lítur það þannig út að Nadal verði hugsanlega ekki með á mótinu vegna meiðsla, það er mikill missir af honum ef svo mun vera.

Lifið heil.

1 comment:

Anonymous said...

Þú bjóst nú í Revierenbuurt fyrstu æviárin. Er ekki hægt að fá leigt þar aftur?

Helga