Thursday, June 28, 2007

Fantti

Nú hef ég formlega lokið fyrsta námsári mínu í Conservatorium van Amsterdam. Tók básúnuprófið í gær.

Prófið gekk bara mjög vel og verð ég að segja að mér hefur aldrei gengið jafn vel á prófi á básúnu. Fyrst spilaði ég Cavantine eftir Saint-Saens og eftir það var það Song til Lotta eftir Jan Sandström.

Ég tók þá ákvörðun fyrir prófið að láta þetta vera bara skemmtileg og þægileg lífsreynsla og ég klæddi mig eftir því. Eftir prófið virtist það vera það eina sem dómnefndin hafði að segja um frammistöðu mína, hvernig ég væri klæddur. Raymond hafði á orði að ég liti út eins og hollenskur fótboltaleikmaður. En allir voru þeir sammála um að ég hafi tekið miklum framförum í ár og að ég eigi mikið inni.

Loksins klikkaði þetta hjá mér og Elizabeth. Við höfum átt í svoddan erfiðleikum með að spila saman í ár en nú gekk allt í sögu og töluðum við virkilega saman í gegnum hljóðfærin, það var mjög ánægjulegt.

Eftir prófið fór ég svo á síðustu tónleika Concertgebouw hljómsveitarinnar á þessu starsári. Hápunkturinn var Brahms 1 í fágaðri en samt þróttmikilli túlkun aðalhljómsveitarstjóra sveitarinnar, Maris Janson. Básúnukórallinn frægi var undurfallegur í meðförum Jörgens, Nico og Martins. En Martin var að spila sína fyrstu tónleika sem bassabásúnuleikari. Bart fárveiktist um daginn og varð að draga sig úr hópnum.

Að sjálsögðu var farið á Lusthof að loknum tónleikunum og mikið drukkið. Ég, Kenneth, Suzanne, Loes og Jan mynduðum myndarlegan hóp brass-spilara og drukkum eftir því. Nema Loes að sjálfsögðu en hún er strang-kristin eins og ég hef áður sagt. Þetta var æðislegt kvöld en þegar því endaði varð ekki neitað að maður varð dáldið tilfinningasamur. Maður á ekki eftir að sjá fólkið fyrr en í september. Nema Jan, hann verður í Corfu.

Í dag svaf ég svo út og þegar ég vaknaði tók ég öllu með ró og byrjaði að taka til. Undir kvöldið kom Antti svo í heimsókn og spjölluðum við slatta og fórum út að borða og fengum okkur ítalskar flatbökur sem hvorugur gat klárað.

Það var mjög gaman að hitta Antti. Hann er einn af þeim sem ég næ mjög vel saman með og skiptir engu þótt það sé rúmt ár síðan við hittumst síðast, fyrir utan síðustu viku.

Ég hjólaði á Lusthof áðan þegar ég var búinn að koma Antti í lestina en ég sá engan sem ég þekkti þannig að ég hjólaði bara aftur heim, opnaði ískápinn og náði mér í dós af fanta og settist fyrir framan tölvuna og byrjaði að blogga. Og nú er fantað búið sem þýðir að ég verð að ná mér í aðra dós, keypti kippu í dag.

Á morgun legg ég svo lokahönd á undirbúninginn fyrir heimferðina með viðkomu í Corfu.

Þakka þeim sem lásu,

5 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með 1. árið, passaðu þig nú samt á bjórnum og Fantanu

Anonymous said...

Til hamingju með prófalok :)

Anonymous said...

Korfú er grísk eyja í Jónahafi. Höfuðborgin heitir líka Korfú. Eyjan er nyrst Jónaeyja.

Fjöllótt með frjósömum dölum þar sem einkum eru ræktaðar þrúgur og aðrir ávextir.

Flatarmál eyjarinnar er 641 ferkílómetri.

Íbúafjöldi 105.014

Framleiðsluvörur: Ólífuolía, vín, grænmeti og hinn einstaki Kumquat ávöxtur.

Anonymous said...

Til Hamingju Ari, amma í Nökkvavogi

Unknown said...

Til hamingju með þetta kall, farðu síðan að koma heim